Guðrún Gísladóttir (Héðinshöfða)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Guðrún Gísladóttir, (Dúna) frá Héðinshöfða, húsfreyja fæddist 3. nóvember 1938 á Stóru-Heiði.
Foreldrar hennar voru Gísli Gíslason skipasmiður, f. 13. nóvember 1902, d. 24. desember 1972, og kona hans Ásdís Guðmundsdóttir húsfreyja, f. 10. ágúst 1913, d. 9. október 1995.

Börn Ásdísar og Gísla:
1. Unnur Gísladóttir húsfreyja á Akureyri og í Reykjavík, f. 10. ágúst 1934 í Reykjavík.
2. Haukur Gíslason vélstjóri í Eyjum, f. 29. október 1935 á Stóru-Heiði, d. 2. mars 1980.
3. Garðar Gíslason skósmiður í Kópavogi, f. 3. mars 1937 á Stóru-Heiði.
4. Guðrún Gísladóttir húsfreyja, f. 3. nóvember 1938 á Stóru-Heiði.
5. Sigríður Gísladóttir húsfreyja, f. 3. nóvember 1938 á Stóru-Heiði, d. 6. janúar 2024.
6. Gísli Gíslason bóndi á Geldingalæk á Rangárvöllum, f. 15. mars 1940 í Birtingarholti.
7. Þóra Gísladóttir, f. 6. ágúst 1941 í Héðinshöfða, d. 1. mars 1944.
8. Guðmundur Gíslason sjómaður, f. 2. nóvember 1942 í Héðinshöfða, d. 5. nóvember 1968.
9. Halldóra Gísladóttir, f. 20. júlí 1944 í Héðinshöfða, hrapaði til bana úr Hánni 17. maí 1954.
10. Sigurlaug Gísladóttir húsfreyja, f. 12. janúar 1946 í Héðinshöfða, d. 9. nóvember 2022.
11. Stefán Gíslason, f. 21. október 1948 í Héðinshöfða, d. af slysförum 22. apríl 1966.
12. Ólafur Gíslason verkstjóri, f. 12. nóvember 1949 í Héðinshöfða.
13. Kristrún Gísladóttir húsfreyja, f. 2. mars 1952 í Héðinshöfða.
14. Halldóra Gísladóttir húsfreyja, kennari, f. 30. september 1955 í Héðinshöfða.
15. Þóra Gísladóttir húsfreyja, f. 5. mars 1957 í Héðinshöfða.

Guðrún var með foreldrum sínum í æsku.
Þau Ragnar giftu sig, eignuðust þrjú börn, en gáfu eitt þeirra til ættleiðingar. Þau bjuggu við Hásteinsveg 48. Þau skildu.
Þau Magnús giftu sig, eignuðust ekki börn saman. Þau bjuggu á Sunnuhvoli við Miðstræti 24 í Eyjum og í Reykjavík.

I. Sambúðarmaður Guðrúnar, skildu, var Ragnar Lárusson frá Brúarlandi í Mosfellssveit, sjómaður, teiknari, blaðamaður, rithöfundur, f. 13. desember 1935, d. 31. desember 2007.
Börn þeirra:
1. Gísli Ragnarsson vélvirki, f. 29. maí 1957 í Héðinshöfða. Kona hans Guðbjörg Ósk Baldursdóttir, verslunarmaður.
2. Ásdís Ragnarsdóttir læknaritari, f. 26. nóvember 1958 á Hásteinsvegi 48. Hún var ættleidd af Viggó Valdimarssyni og Klöru Bergþórsdóttur. Maður hennar Steinar Guðmundsson.
3. Kristín Lára Ragnarsdóttir, bókasafnsfræðingur, f. 3. september 1961 í Héðinshöfða. Maður hennar Tómas Örn Stefánsson, flugvirki.

II. Maður Guðrúnar var Guðni Magnús Sveinsson frá Eskifirði, sjómaður starfsmaður Skeljungs, f. 5. september 1946, d. 8. apríl 2020. Þau voru barnlaus saman.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.