Guðrún Ólafsdóttir ljósmóðir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 14. október 2015 kl. 21:23 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 14. október 2015 kl. 21:23 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Guðrún Ólafsdóttir ljósmóðir fæddist á Flateyri við Önundarfjörð 8. ágúst 1920 og lézt í Reykjavík 22. maí 1978.

Ætt og uppruni

Faðir hennar var Ólafur Guðmundur kennari, kaupmaður, bakari og hreppstjóri á Flateyri, f. 30. ágúst 1879, d. 7. maí 1948, Sigurðar formanns, útgerðarmanns, kaupmanns og símstöðvarstjóra á Hrauni í Hnífsdal og á Langeyri í Álftafirði, f. 1860, d. 1950, Þorvarðarsonar og barnsmóður Sigurðar, Elínar Jóhannesdóttur frá Blámýrum í Ögursveit við Djúp, síðar húsfreyju á Hríshóli í Reykhólasveit í Barðastrandarsýslu, f. 1854, d. 1920. Móðir Guðrúnar og kona (25. marz 1917) Ólafs Guðmundar var Valgerður húsfreyja, f. 26. sept. 1893, d. 1. nóv. 1968, Guðmundar bónda að Bakkaseli í Ögursveit, f. 1849, Hafliðasonar og barnsmóður hans, Guðrúnar Sigurðardóttur.

Lífsferill

Guðrún var í Húsmæðraskólanum að Laugalandi í Eyjafirði 1944-1945, lauk ljósmæðraprófi við Ljósmæðraskóla Íslands 30. september 1947. Hún var ljósmóðir við Landspítalann frá 1947-30. september 1949, er hún varð ljósmóðir í Eyjum og því starfi gegndi hún til dánardægurs 1978.

Maki (1. des. 1951): Magnús Þórður Ágústsson bifreiðastjóri, f. 7. maí 1921, d. 17. júlí 1986, Ágústsson yfirfiskimatsmanns á Aðalbóli í Eyjum, f. 22. ágúst 1893, Þórðarsonar og konu Ágústs, Viktoríu Guðmundsdóttur húsfreyju, f. 22. febrúar 1897.
Börn þeirra Magnúsar Þórðar eru:

  1. Valgerður Ólöf Magnúsdóttir ljósmóðir í Eyjum, f. 23. marz 1953.
  2. Magnús Rúnar rafvirki hjá Orkuveitu Reykjavíkur, f. 29. júlí 1956.

Heimildir

  • Upphaflega grein skrifaði Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Brynleifur Tobíasson: Hver er maðurinn. Reykjavík: Bókaforlag Fagurskinna (Guðmundur Gamalíelsson), 1944.
  • Guðni Jónsson: Bergsætt. Reykjavík. I. Bls 433.
  • Kennaratal á Íslandi. Reykjavík: Prentsmiðjan Oddi H.F., 1958-1988.
  • Legstaðaskrá.
  • Ljósmæður á Íslandi. Reykjavík: Ljósmæðrafélag Íslands, 1984.
  • Vestfirzkar ættir. Reykjavík: V.B. Valdimarsson, 1959-1968.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.