Guðrún Ólafsdóttir (Karlsbergi)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 10. september 2019 kl. 17:54 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 10. september 2019 kl. 17:54 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Guðrún Sigríður Ólafsdóttir frá Vestri-Torfastöðum í Fljótshlíð, húsfreyja fæddist 10. september 1897 og lést 2. janúar 1957.
Foreldrar hennar voru Ólafur Sigurðsson bóndi, síðar á Hólnum, Landagötu 18, f. 24. febrúar 1865, d. 30. janúar 1946 og kona hans Aðalheiður Jónsdóttir húsfreyja, f. 12. október 1873, d. 24. ágúst 1933.

Börn Aðalheiðar og Ólafs í Eyjum:
1. Jóhanna Ólafsdóttir húsfreyja, f. 26. júlí 1895, d. 27. júlí 1984, kona Guðmundar Jónssonar skósmiðs.
2.Guðrún Sigríður Ólafsdóttir húsfreyja, f. 10. september 1897, d. 2. janúar 1957, kona Carls Gränz málara- og trésmíðameistara.
3. Aðalheiður Ólafsdóttir húsfreyja, f. 5. nóvember 1901, d. 28. desember 1990, kona Guðna Ólafssonar.
4. Óskar Ólafsson frá Hólnum við Landagötu, pípulagningamaður, f. 15. ágúst 1905, d. 23. janúar 1986, maður Kristínar Jónsdóttur.
5. Jón Ólafsson sjómaður, verkamaður, síðar í Reykjavík, f. 1. apríl 1910, d. 7. nóvember 1937.
6. Ingólfur Ólafsson sjómaður, síðast í Görðum, f. 23. janúar 1914, d. 12. janúar 1941.
7. Guðmunda Ólafsdóttir vinnukona á Karlsbergi 1930, síðar húsfreyja í Hafnarfirði, f. 10. maí 1916, d. 17. júlí 1994.
8. Kjartan Ólafsson kennari, f. 3. ágúst 1917, d. 13. desember 1969. Kona hans var Sigríður Elísabet Bjarnadóttir húsfreyja.

Guðrún var með foreldrum sínum í æsku, kom með þeim frá Kirkjulandi í A-Landeyjum 1898 að Vestri-Torfastöðum, var með þeim þar 1910 og 1920, fluttist til Eyja eftir giftingu sína í Reykjavík 1924.
Þau Carl Jóhann bjuggu á Karlsbergi, Heimagötu 20 1925 og enn 1932, eignuðust þar þrjú börn. Þau bjuggu á Haukabergi, í Vegg, Miðstræti 9c 1940 og fluttu til Selfoss 1942.
Guðrún Sigríður lést 1957, jarðsett á Breiðabólstað í Fljótshlíð, og Carl Jóhann lést 1967, jarðsettur þar einnig.

I. Maður Guðrúnar Sigríðar, (10. september 1924 í Reykjavík), var Carl Jóhann Gränz málara- og trésmíðameistari, f. 22. júlí 1887 í Reykjavík, d. 14. nóvember 1967.
Börn þeirra:
1. Áki Guðni Gränz, málarameistari, listamaður, f. 26. júní 1925 á Karlsbergi, d. 4. febrúar 2014.
2. Herbert Gränz málarameistari á Selfossi, f. 12. apríl 1930 á Karlsbergi, Heimagötu 20, d. 3. febrúar 2011.
3. Gunnar Carl Gränz málarameistari, myndlistarmaður á Selfossi, f. 30. nóvember 1932 á Karlsbergi.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Íslenskir málarar - Saga og málaratal. Kristján Guðlaugsson. Málarameistarafélag Reykjavíkur 1982.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.