Guðrún Ólafsdóttir (Karlsbergi)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 6. september 2019 kl. 13:47 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 6. september 2019 kl. 13:47 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Guðrún Sigríður Ólafsdóttir''' frá Vestri-Torfastöðum í Fljótshlíð, húsfreyja fæddist 10. september 1897 og lést 2. janúar 1957.<br> Foreldrar hennar voru Ólafu...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Guðrún Sigríður Ólafsdóttir frá Vestri-Torfastöðum í Fljótshlíð, húsfreyja fæddist 10. september 1897 og lést 2. janúar 1957.
Foreldrar hennar voru Ólafur Sigurðsson bóndi, síðar á Hólnum, Landagötu 18, f. 24. febrúar 1865, d. 30. janúar 1946 og kona hans Aðalheiður Jónsdóttir húsfreyja, f. 12. október 1873, d. 24. ágúst 1933.

Börn Aðalheiðar og Ólafs í Eyjum:
1. Jóhanna Ólafsdóttir húsfreyja, f. 26. júlí 1895, d. 27. júlí 1984, kona Guðmundar Jónssonar skósmiðs.
2. Óskar Ólafsson frá Hólnum við Landagötu, pípulagningamaður, f. 15. ágúst 1905, d. 23. janúar 1986.
3. Jón Ólafsson sjómaður, verkamaður, síðar í Reykjavík, f. 1. apríl 1910, d. 7. nóvember 1937.
4. Ingólfur Ólafsson verkamaður, f. 23. janúar 1914, d. 12. janúar 1941.
5. Guðmunda Ólafsdóttir vinnukona á Karlsbergi 1930, síðar húsfreyja í Hafnarfirði, f. 10. maí 1916, d. 17. júlí 1994.
6. Kartan Ólafsson kennari, f. 3. ágúst 1917, d. 13. desember 1969.

Guðrún var með foreldrum sínum í æsku, kom með þeim frá Kirkjulandi í A-Landeyjum 1898 að Vestri-Torfastöðum, var með þeim þar 1910 og 1920, fluttist til Eyja eftir giftingu sína í Reykjavík 1924.
Þau Carl Jóhann bjuggu á Karlsbergi, Heimagötu 20 1925 og enn 1932, eignuðust þar þrjú börn. Þau bjuggu á Haukabergi, í Vegg, Miðstræti 9c 1940 og fluttu til Selfoss 1942.
Guðrún Sigríður lést 1957, jarðsett á Breiðabólstað í Fljótshlíð, og Carl Jóhann lést 1967, jarðsettur þar einnig.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Íslenskir málarar - Saga og málaratal. Kristján Guðlaugsson. Málarameistarafélag Reykjavíkur 1982.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.