Guðrún Ástgeirsdóttir (Litlabæ)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Prentvæn útgáfa er ekki lengur studd og gæti verið með myndgerðarvillur. Uppfærðu bókamerki vafrans þíns og notaðu frekar sjálfgefna prentunaraðgerð vafrans.

Guðrún Ástgeirsdóttir frá Litlabæ, húsfreyja á Staðarfelli fæddist 5. ágúst 1890 og lést 28. nóvember 1915.
Foreldrar hennar voru Ástgeir Guðmundsson bátasmiður í Litlabæ, f. 27. október 1858 á Bryggjum í A-Landeyjum, d. 30. september 1943, og kona hans Kristín Magnúsdóttir húsfreyja, f. 10. janúar 1859 að Skíðbakka í A-Landeyjum, d. 13. júlí 1938.

Börn Kristínar og Ástgeirs:
1. Jónína Ástgeirsdóttir húsfreyja á Bergi, f. 4. júlí 1884 í V-Landeyjum, d. 8. mars 1917. Fyrri maður hennar var Sigurjón Jónsson sjómaður, f. 2. desember 1880, fórst af mb. Sæborgu VE-124 á Þykkvabæjarfjöru 9. október 1909. Síðari maður hennar var Þórður Jónsson formaður og skipasmiður frá Gamla-Hrauni á Eyrarbakka, f. 10. júní 1887, d. 1. febrúar 1939.
2. Magnús Ástgeirsson sjómaður, f. 27. apríl 1887, fórst af mb. Sæborgu VE-124 á Þykkvabæjarfjöru 9. október 1909, ókvæntur.
3. Guðmundur Ástgeirsson sjómaður, f. 22. maí 1889, d. 26. ágúst 1970, kvæntur Jóhönnu Sigríði Jónsdóttur húsfreyju, f. 24. júní 1889, d. 4. apríl 1977.
4. Guðrún Ástgeirsdóttir húsfreyja, fyrri kona Einars Sæmundssonar húsasmíðameistara, síðar á Staðarfelli. Hún var fædd 5. ágúst 1890 og lést 28. nóvember 1915.
5. Ólafur Ástgeirsson bátasmiður, f. 3. ágúst 1892, d. 8. apríl 1966, kvæntur fyrr Kristínu Jónsdóttur húsfreyju, f. 19. apríl 1885 að Varmahlíð u. Eyjafjöllum, d. 17. september 1943.
Síðari kona Ólafs var Guðrún Sigurðardóttir húsfreyja, f. 9. september 1920, d. 19. apríl 1993.
6. Kristinn Ástgeirsson listmálari á Miðhúsum, f. 6. ágúst 1894, d. 31. júlí 1981, kvæntur Jensínu Maríu Matthíasdóttur frá Færeyjum, húsfreyju, f. 16. febrúar 1892 í Kvívík í Færeyjum, d. 28. maí 1947.
7. Valdimar Ástgeirsson málari, leikari, f. 19. september 1898, d. 26. júlí 1978. Kona hans var Þórodda Vigdís Loftsdóttir húsfreyja, f. 12. ágúst 1905, d. 29. júlí 1986.
7. Kristín Ástgeirsdóttir húsfreyja, f. 9. ágúst 1900, d. 19. janúar 1991, var gift Engilberti Guðmundssyni trésmið. Hann fæddist 4. ágúst 1899 og lést á Vífilsstöðum 2. desember 1945.

Guðrún var með foreldrum sínum í æsku og bjó nýgift í Litlabæ 1910. Þau Einar voru komin á Staðarfell 1912 og bjuggu þar.
Guðrún lést 1915.

Maður Guðrúnar, (25. nóvember 1910), var Einar Sæmundsson húsasmíðameistari, f. 9. desember 1884, d. 14. desember 1974.
Þau voru barnlaus.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.