Guðríður Sigurðardóttir (Búastöðum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 28. janúar 2016 kl. 15:10 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 28. janúar 2016 kl. 15:10 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Guðríður Sigurðardóttir frá Búastöðum fæddist 13. ágúst 1867og lést 1918.
Foreldrar hennar voru Sigurður Torfason sjávarbóndi og hreppstjóri á Búastöðum, f. 14. febrúar 1822, d. 18. apríl 1870, og kona hans Guðríður Jónsdóttir húsfreyja, f. 6. ágúst 1829, d. 15. ágúst 1867.

Börn Sigurðar og Guðríðar voru:
1. Jón Sigurðsson, f. 25. febrúar 1851, d. 11. mars 1851 „af Barnaveikin ginklofa“.
2. Guðrún Sigurðardóttir vinnukona, f. 18. september 1852, d. 21. mars 1939.
3. Hjálmar Sigurðsson, f. 17. ágúst 1853, d. 30. október 1853 „af barnaveiki“.
4. Jón Sigurðsson, f. 22. ágúst 1854, d. 16. nóvember 1854, „dó hastarlega án þess að merki væru um nokkurn sjúkleika“.
5. Einar Sigurðsson skipstjóri, f. 25. febrúar 1856, drukknaði 31. mars 1889.
6. Tómas Sigurðsson, f. 24. mars 1857, d. 5. apríl 1857 úr ginklofa.
7. Sigríður Sigurðardóttir, f. 24. júní 1859, d. 25. janúar 1940.
8. Vilborg Sigurðardóttir, f. 9. júní 1858, d. 20. júní 1858 úr ginklofa.
9. Vilhjálmur Sigurðsson, f. 14. ágúst 1860, d. 2. febrúar 1861 af bólguígerð.
10. Torfi Sigurðsson verkamaður í Norðurbæ á Eyrarbakka 1930, f. 11. nóvember 1861, d. 19. september 1950.
11. Bjarni Sigurðsson, f. 5. ágúst 1863, d. 10. desember 1863 úr „uppdráttarsýki‟.
12. Gróa Björg Sigurðardóttir vinnukona, f. 26. maí 1865, d. 12 júlí 1882.
13. Guðríður Sigurðardóttir vinnukona, f. 13. ágúst 1867, d. 1918,

Móðir Guðríðar lést tveim dögum eftir að hún fæddist og faðir hennar lést 1870, er hún var 3 ára.
Hún var niðursetningur á Löndum 1870 hjá Helgu Árnadóttur húsfreyju og Sveini Þórðarsyni beyki, léttastúlka í Jómsborg 1880, vinnukona í Batavíu við fæðingu Sigurðar 1888 og enn 1890, í Elínarhúsi 1891 og þar var Sigurður Brandsson vinnumaður, á Vilborgarstöðum 1892 og 1893.
Guðríður eignaðist Sigríði á Vilborgarstöðum 1893 og fór til Seyðisfjarðar 1894, en barnið var tökubarn í Svaðkoti. Hún var hjú á Hallfreðarstöðum á Héraði 1901, lést 1918.

I. Guðríður eignaðist barn með Helga Eyjólfi Jónssyni verslunarstjóra í Garðinum, síðar, bankaritara í Reykjavík, f. 31. október 1852, d. 6. júní 1905.
Barnið var
1. Sigurður Helgason sjómaður í Götu f. 11. desember 1888 í Batavíu, d. 24. júlí 1935, hrapaði úr Miðkletti.

II. Barnsfaðir hennar var Sigurður Brandsson frá Markhól á Rangárvöllum, f. 18. september 1864. Hann fór til Utah frá Elínarhúsi 1892, áður en Sigríður fæddist.
Barn þeirra var
2. Sigríður Sigurðardóttir, f. 12. janúar 1893. Hún fór til Ameríku 1904.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.