Guðríður Guðmundsdóttir (Hábæ)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 28. apríl 2020 kl. 12:36 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 28. apríl 2020 kl. 12:36 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Guðríður Guðmundsdóttir húsfreyja í Hábæ fæddist 12. maí 1893 í Juliushaab og lést 24. júlí 1984 í Reykjavík.
Foreldrar hennar voru Guðmundur Jesson verkamaður, f. 13. nóvember 1867, d. 19. apríl 1931, og barnsmóðir hans Kristín Ólafsdóttir frá Litlakoti, f. 8. september 1868, d. 6. janúar 1944.

Börn Kristínar og Ágústs Sveinbjörnssonar:
1. Petrún Ólöf Ágústsdóttir húsfreyja, (nefnd Petrína við jarðsetningu), síðast á Svalbarðseyri við Eyjafjörð, f. 14. maí 1898 á Nesi í Norðfirði, d. 5. mars 1985.
2. Anna Oddný Ágústsdóttir Olsen húsfreyja, f. 20. ágúst 1900 í Norðfirði, d. 12. maí 1959. Bjó í Reykjavík
3. Ingibjörg Ágústsdóttir húsfreyja, síðast á Breiðabóli á Svalbarðsströnd, f. 16. desember 1903, d. 10. janúar 1991.
4. Kristín Ágústa Ágústsdóttir, f. 5. september 1906, d. 27. september 1906.
5. Ágústa Kristín Ágústsdóttir húsfreyja og kaupkona, f. 14. september 1908, d. 20. janúar 2004.

Guðríður var fósturbarn á Kirkjubæ hjá Sigurlaugu Guðmundsdóttur og Ísleifi Guðnasyni 1901, vinnukona þar 1910.
Þau Guðríður giftu sig 1916 og bjuggu í Þingholti. Á Geirlandi bjuggu þau við fæðingu Guðnýjar Sigurleifar 1918. Þau fóru til Siglufjarðar 1919 með Guðnýju Sigurleif og þar fæddist Ólafur. Þau voru á Litlu-Grund 1920 með Stefáni og börnunum Guðnýju Sigurleif og Ólafi Kristni, er þau misstu Þorstein. Þau voru í París II við fæðingu Þorsteins yngri 1921 á Oddeyri (Flötum 14) við fæðingu Regínu Matthildar 1923, í Vesturholti við Brekastíg 1927, í Hábæ 1930 með nefnd börn og Þorstein, Regínu Matthildi, Kristínu og Ástu.
Þau bjuggu á Fífilgötu 2 1942.
Þau Stefán fluttust úr bænum á fimmta áratugnum, en sneru aftur, bjuggu á Strembu 1949. Þau fluttu til Reykjavíkur og þar lést Stefán 1973 og Guðríður 1984.

Maður Guðríðar, (23. júlí 1916), var Stefán Vilhjálmsson verkamaður, f. 24. ágúst 1890, d. 29. júní 1973.
Börn þeirra hér:
1. Guðný Sigurleif Stefánsdóttir, f. 14. febrúar 1918, d. 15. janúar 2009.
2. Ólafur Kristinn Stefánsson múrari, f. 8. ágúst 1919, d. 29. febrúar 2000.
3. Þorsteinn Stefánsson, f. 2. október 1920 á Litlu-Grund, d. 24. nóvember 1920.
4. Þorsteinn Stefánsson sjómaður, f. 9. nóvember 1921 í París II, fórst með flugvélinni Glitfaxa 31. janúar 1951.
5. Regína Matthildur Stefánsdóttir, f. 18. september 1923.
6. Kristín Stefánsdóttir, f. 21. febrúar 1925.
7. Ásta Stefánsdóttir, f. 27. september 1927.
8. Vilhjálmur Stefánsson, f. 12. febrúar 1931.
Hjá þeim ólst upp sonur Regínu Matthildar
9. Henry Stefáns, síðar í Florida, f. 13. mars 1944 í Reykjavík.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.