Guðni Hjörleifsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Guðni Hjörleifsson.

Guðni Hjörleifsson netagerðarmeistari fæddist 8. nóvember 1957.
Foreldrar hans Hjörleifur Guðnason múrarameistari, húsvörður, f. 5 júní 1925 að Hjarðarholti í Seyðisfirði, d. 13. júní 2007, og kona hans Inga Jóhanna Halldórsdóttir frá Norðfirði, húsfreyja, f. 30. nóvember 1927.

Börn Ingu og Hjörleifs:
1. Lilja Dóra Hjörleifsdóttir, f. 7. október 1947.
2. Guðmunda Hjörleifsdóttir, f. 23. apríl 1949.
3. Guðjón Hjörleifsson, f. 18. júní 1955.
4. Guðni Hjörleifsson, f. 8. nóvember 1957.
5. Halldór Hjörleifsson, f. 9. nóvember 1960.
6. Sigrún Hjörleifsdóttir, f. 25. ágúst 1962.
7. Jónína Björk Hjörleifsdóttir, f. 24. maí 1966.

Guðni var með foreldrum sínum í æsku.
Hann lærði netagerð hjá Netagerð Ingólfs, lauk sveinsprófi 1983, fékk meistararéttindi.
Guðni hefur verið sjómaður, var framkvæmdastjóri í Hallarlundi, rak kvikmyndahús með Rósu í Höllinni og Félagsheimilinu við Heiðarveg 1989-2000. Hann hefur unnið við netagerð hjá Bergur-Huginn í 30 ár.

Kona Guðna, (24. maí 1986), er Rósa Sveinsdóttir húsfreyja, f. 26. september 1963. Þau bjuggu í fyrstu við Kirkjubæjarbraut 9, á æskuheimili Guðna, búa nú við Bessahraun 1b.
Börn þeirra:
1. Ásta Björk Guðnadóttir leikskólakennari, f. 5. mars 1986. Fyrrum sambúðarmaður Rúnar Freyr Guðmundsson. Maður hennar Magnús Kristleifur Magnússon.
2. Hjörleifur Guðnason nemi í tölvuforritun í HR., f. 1. september 1988. Kona hans Heiður Embla Elfarsdóttir.
3. Víðir Þór Guðnason pípulagningamaður, f. 3. ágúst 1994.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.