Guðni Grímsson (Haukabergi)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 18. júní 2012 kl. 15:27 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 18. júní 2012 kl. 15:27 eftir Daniel (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Sjá aðgreiningarsíðuna fyrir aðra sem hafa borið nafnið „Guðni Grímsson


Guðni

Guðni Grímsson frá Haukabergi er fæddur 13. nóvember 1934. Foreldrar hans voru Grímur Gíslason og Guðbjörg Magnúsdóttir.

Guðni kvæntist Esther Valdimarsdóttur á jóladag 1956. Börn þeirra eru Valdimar f. 1957, Grímur f.1960, Guðni Ingvar f.1963 og Bergur f.1964.

Fjölskyldan bjó í húsinu Einbúa við Bakkastíg fyrir gos en húsið fór undir hraun. Guðni og Esther búa nú á Áshamri.

Nám og störf

Guðni gekk í Barnaskóla Vestmannaeyja og að honum loknum fór hann í Kvöldskóla iðnaðarmanna og tók minna mótorvélstjórapróf 1954 og 1. stig Stýrimannaskólans í Vestmannaeyjum 1960.

Fyrst fór hann til sjós á mb. Sjöfn VE-37 á síldveiðar fyrir Norðurlandi. Formaður var Þorsteinn Gíslason frá Görðum. Guðni var vélstjóri hjá Hraðfrystistöð Vestmannaeyja á mb. Tý VE-315 eftir að hann tók vélstjóraprófið til 1957. Þá var hann hjá Helga Benediktssyni í eitt ár á mb. Fjalari og stýrimaður á Farsæli í eitt ár. Hann var skipstjóri eina vertíð eftir skipstjórnarprófið. Frá 1960 var hann vélstjóri hjá Rafveitu Vestmannaeyja (síðar Bæjarveitum Vestmannaeyja).

Guðni hefur starfað í Kiwanis-hreyfingunni frá árinu 1971. Var hann forseti Kiwanisklúbbsins Helgafells 1982-83 og svæðisstjóri Suðurlands 1988-89.


Heimildir

  • Þorsteinn Jónsson og Franz Gíslason. Vélstjóra- og vélfræðingatal II. Reykjavík: Þjóðsaga ehf, 1996.