Guðný Eyjólfsdóttir (Lundi)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 10. febrúar 2020 kl. 14:35 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 10. febrúar 2020 kl. 14:35 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Guðný Jóhanna Eyjólfsdóttir.

Guðný Jóhanna Eyjólfsdóttir frá Hrútafelli u. Eyjafjöllum, húsfreyja, verkakona fæddist 10. júlí 1936 og lést 24. janúar 2020.
Foreldrar hennar voru Eyjólfur Þorsteinsson bóndi, f. 25. júlí 1892, d. 17. september 1973, og kona hans Helga Ólafsdóttir frá Skarðshlíð, húsfreyja, f. 11. mars 1901, d. 8. nóvember 1977.

Hálfbróðir Guðnýjar, sonur Eyjólfs er:
1. Trausti Eyjólfsson bóndi, æskulýðsfulltrúi, hótelstjóri, kennari, f. 19. febrúar 1928.

I. Börn Ólafs Jónssonar í Eyjum og systkini Helgu Ólafsdóttur voru m.a.:
1. Jón Ólafsson útgerðarmaður á Hólmi, f. 7. mars 1892, d. 21. desember 1946.
2. Guðlaug húsfreyja í Fagurhól.
Bræður Ólafs Jónssonar voru:
II. Sveinn Jónsson bóndi í Selkoti, faðir:
1. Hjörleifs í Skálholti,
2. Tómasar Sveinssonar á Faxastíg 15 og
Sigfúsar Sveinssonar á Kirkjubæjarbraut 8 og
III. Vigfús Jónsson faðir
1. Ólafs Vigfússonar skipstjóra í Gíslholti.

Guðný var með foreldrum sínum í æsku, gekk í Skógaskóla og fór í vist í Reykjavík fimmtán ára.
Hún fluttist til Eyja 1955, fiskverkakona hjá Ísfélaginu.
Þau Sveinn giftu sig 1956, eignuðust þrjú börn, bjuggu fyrst á Lundi, en síðan á Höfðavegi 32 í 14 ár, til Goss 1973. Þau fluttust til Eyja eftir Gos, en bjuggu þar aðeins nokkra mánuði, sneru síðan á Selfoss og hafa búið þar síðan, fyrst í leiguhúsnæði. Þau byggðu Laufhaga 7 og hafa búið þar frá 1976.
Guðný vann verkakvennastörf við fiskvinnslu, við kjötvinnslu hjá versluninni Höfn og síðast hjá Mjólkurbúi Flóamanna.

I. Maður Guðnýjar, (10. nóvember 1956), er Sveinn Þórarinsson vélvirki, vélstjóri, f. 10. nóvember 1935 á Borgareyri í Mjóafirði eystri.
Börn þeirra:
1. Steinunn Sveinsdóttir húsfreyja, skrifstofumaður hjá Námsgagnastofnun, f. 8. febrúar 1957 í Eyjum. Maður hennar er Eyjólfur Karlsson.
2. Helga Margrét Sveinsdóttir húsfreyja, bókhaldari, f. 20. maí 1959 á Lundi. Maður hennar er Robert McKee.
3. Linda Dögg Sveinsdóttir húsfreyja, kennari á Selfossi, f. 6. júní 1974. Maður hennar er Árni Þór Guðjónsson.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.