Guðmundur Sigurðsson (Búastöðum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Prentvæn útgáfa er ekki lengur studd og gæti verið með myndgerðarvillur. Uppfærðu bókamerki vafrans þíns og notaðu frekar sjálfgefna prentunaraðgerð vafrans.

Guðmundur Sigurðsson skósmiður og matsveinn í Hafnarfirði fæddist 8. desember 1885 á Búastöðum og lést 10. nóvember 1949.
Foreldrar hans voru Sigurður Guðmundsson vinnumaður, kallaður „bonn“, f. 10. apríl 1858, d. 27. júní 1911, og barnsmóðir hans Guðríður Jónsdóttir frá Grímshjalli, þá vinnukona á Búastöðum, f. 24. júlí 1851, d. 13. desember 1885.

Móðir Guðmundar dó af þessum barnsförum.
Hann var niðursetningur hjá Arnbjörgu Árnadóttur ekkju á Vilborgarstöðum 1886-1894.
Hann fór með henni til Seyðisfjarðar 1895, var þar 1901.
Guðmundur fluttist til Hafnarfjarðar 1907, bjó í húsi Egils Eyjólfssonar 1910, í Holti í Skuldarhverfi 1920. Hann stundaði sjómennsku og skósmíðaiðn. Guðmundur lést 1949.

Kona Guðmundar, (11. júlí 1906), var Þóra Egilsdóttir húsfreyja, f. 21. júní 1878 á Brennu í Flóa, d. 25. maí 1932.
Börn þeirra hér nefnd:
1. Þóra Lovísa Guðmundsdóttir, f. 18. ágúst 1906 á Seyðisfirði, d. 24. apríl 1910.
2. Eyrún Guðmundsdóttir, f. 11. október 1908, d. 7. nóvember 1936.
3. Þóra Lovísa Sigríður Guðmundsdóttir, f. 26. ágúst 1910, d. 18. ágúst 1987.
4. Guðrún Guðmundsdóttir, f. 28. nóvember 1911, d. 17. mars 1985.
5. Friðleifur Egill Guðmundsson, f. 22. júlí 1920, d. 21. júlí 1988.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.