Guðmundur Pétursson (Elínarhúsi)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 16. ágúst 2015 kl. 11:06 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 16. ágúst 2015 kl. 11:06 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Guðmundur Pétursson sjómaður frá Elínarhúsi fæddist1836 í Presthúsum í Mýrdal og lést 19. janúar 1900.
Foreldrar hans voru Pétur Jónsson sjómaður í Elínarhúsi, f. 1. október 1800, d. 15. maí 1859, og kona hans Guðrún Eyjólfsdóttir húsfreyja, f. 1. mars 1806 í Álftagróf í Mýrdal, d. 28. febrúar 1880.

Guðmundur var með foreldrum sínum 1845 og 1850, vinnumaður á Gjábakka 1855, í Garðinum 1858.
Hann var 23 ára ókvæntur húsbóndi með bústýrunni Rannveigu Ögmundsdóttur í Smiðjunni 1859 og enn 1860, með Guðlaugu konu sinni þar 1861.
Guðmundur var kvæntur í Elínarhúsi 1870, en konan var ekki þar. Hún fluttist til lands 1871. Hann var sagður skilinn vinnumaður í Frydendal 1890.
Guðmundur var hermaður í Herfylkingunni.
Hann dó 1900 á sveit.

I. Barnsmóðir Guðmundar var Margrét Arnbjörnsdóttir, síðar húsfreyja í Nýjahúsi, f. 17. júní 1825 í Eyvindarhólasókn, d. 19. október 1911.
Barn þeirra var:
1. Guðbjörg Guðmundsdóttir húsfreyja í Framnesi, f. 31. ágúst 1858, d. 18. ágúst 1924.

II. Barnsmóðir Guðmundar var Elín Steinmóðsdóttir frá Steinmóðshúsi, f. 26. maí 1836, d. 24. desember 1899.
Barnið var:
2. Steinmóður Guðmundsson, f. 15. maí 1860, var kallaður „Steinmóður sterki“. Hann var sjómaður á Kirkjubæ 1901, fór síðar til Austfjarða og var vinnumaður á Króki í Fáskrúðsfirði 1910.

III. Kona Guðmundar, (4. október 1861, skildu samvistir), var Guðlaug Jónsdóttir húsfreyja, f. 21. júní 1831, d. 22. nóvember 1916.
Börn þeirra voru:
3. Jón Guðmundsson, f. 27. mars 1862, hrapaði til bana 28. júlí 1876.
4. Ólafur Guðmundsson, f. 19. júlí 1864, d. 19. ágúst 1878 úr sullaveiki.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.