Guðmundur Helgi Guðjónsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 15. ágúst 2015 kl. 21:25 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 15. ágúst 2015 kl. 21:25 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Guðmundur Helgi

Guðmundur Helgi Guðjónsson bifvélavirkjameistari frá Dölum fæddist 5. marz 1947 í Eyjum. Foreldrar: Guðjón Jónsson, f. 13.des 1913 d. 30 mars 2001 og k.h. Helga Þuríður Árnadóttir, f. 15 maí 1918 d. 8.des 2008.

Maki (10. des. 1966): Inga Dóra Þorsteinsdóttir, f. 1946.
Börn: Ingigerður sjúkraþjálfari, f. 1966; Guðný Helga löggiltur endurskoðandi, f. 1968; Kristín Hrönn kennari, f. 12. febr. 1976 í Rvk.

Guðmundur Helgi lauk sveinsprófi hjá Hreggviði Jónssyni í Eyjum 1966, en meistararéttindi hlaut hann 1969. Hann rak bílaverkstæðið Bílaver í Eyjum frá 1968 til goss. Hann var verkstæðisformaður hjá Véladeild S.Í.S 1973-1982, þjónustustjóri þar 1982-1992. Hann vann hjá Bifreiðaskoðun Íslands (síðar Frumherja) 1992-2000, tjónafulltrúi var hann hjá Tjónamati og skoðun (F.Í.B), síðan hjá Íslandstryggingu í Reykjavík frá 2004.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.