Guðmundur Guðmundsson (Túnsbergi)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 28. febrúar 2016 kl. 17:24 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 28. febrúar 2016 kl. 17:24 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Verndaði „Guðmundur Guðmundsson (Túnsbergi)“ (‎[edit=sysop] (ótiltekinn)))
Fara í flakk Fara í leit
Prentvæn útgáfa er ekki lengur studd og gæti verið með myndgerðarvillur. Uppfærðu bókamerki vafrans þíns og notaðu frekar sjálfgefna prentunaraðgerð vafrans.

Guðmundur Guðmundsson verkamaður, bræðslumaður á Túnsbergi fæddist 11. október 1891 í Miðey í A-Landeyjum og lést 13. október 1947.
Foreldrar hans voru Guðmundur Guðmundsson, þá vinnumaður í Stóru-Hildisey, síðar í Hrísnesi, f. 26. ágúst 1867, d. 24. febrúar 1950, og barnsmóðir hans Guðfinna Guðmundsdóttir vinnukona í Miðey, f. 6. júní 1859, d. 8. júní 1929.

Móðurbræður Guðmundar í Eyjum voru:
1. Nikulás Guðmundsson tómthúsmaðir í Uppsölum, f. 24. júlí 1850, d. 29. mars 1926.
2. Oddur Guðmundsson sjómaður á Vesturhúsum, f. 22. apríl 1863, fórst með Jósefínu í apríl 1888.
Hálfbróðir Guðmundar í Eyjum var
3. Guðmundur Andrés Guðmundsson bifreiðastjóri í Hrísnesi, f. 16. nóvember 1915, d. 1. janúar 1994.

Guðmundur var tökubarn í Miðey 1901, vinnumaður á Bryggjum í A-Landeyjum 1910 og 1920.
Þau Helga Sigríður komu til Eyja 1924, hann úr Landeyjum, hún úr Reykjavík.
Þau bjuggu í Lambhaga (Vesturvegi 19) við giftingu 1924, í Landlyst við fæðingu Árnýjar Gróu 1926, á Vesturvegi 29 1930 með Árnýju Gróu og 1931 við fæðingu Jónu Kristjönu.
Þau bjuggu á Túnsbergi 1934. Þar bjó Guðmundur síðast. Hann lést 1947, en Helga Sigríður 1986.

Kona hans, (18. október 1924), var Helga Sigríður Árnadóttir húsfreyja, f. 24. ágúst 1902 á Seyðisfirði, d. 4. ágúst 1986.
Börn þeirra:
1. Árný Gróa Guðmundsdóttir verslunarmaður í Reykjavík, f. 27. júlí 1926, d. 18. júní 2014.
2. Jóna Kristjana Guðmundsdóttir húsfreyja, f. 31. mars 1931.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.