Guðmundur Guðmundsson (Kirkjubæ)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 10. apríl 2015 kl. 22:31 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 10. apríl 2015 kl. 22:31 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit


Guðmundur Guðmundsson tómthúsmaður, sjómaður í Litlakoti og húsmaður á Kirkjubæ fæddist 30. mars 1827 og lést 16. febrúar 1865.
Faðir hans var Guðmundur bóndi á Skíðbakka í A-Landeyjum, f. á Lágafelli þar, skírður 18. febrúar 1792, d. 27. mars 1840 í Eyjum, Magnússon bónda á Búðarhóli þar, f. 1763 í Vatnsdalskoti í Fljótshlíð, d. 26. júní 1839 á Kirkjulandi í A-Landeyjum, Jónssonar bónda í Vatnskoti, f. 1730, Magnússonar, og konu Jóns í Vatnskoti, Signýjar húsfreyju, f. 1734, d. 1. maí 1811, Brandsdóttur.
Móðir Guðmundar á Skíðbakka og fyrri kona Magnúsar á Búðarhóli var Kristín húsfreyja, f. 1755 á Hvoli í Fljótshverfi, V-Skaft., Árnadóttir bónda á Hvoli, f. 1724, d. 29. júlí 1784, Hávarðssonar, og konu Árna, Ragnhildar húsfreyju, f. 1725, d. 1784. Jónsdóttur.

Guðmundur bóndi á Búðarhóli, faðir Kristínar Guðmundsdóttur í Þorlaugargerði ættmóður Oddsstaðasystkina eldri og Guðmundur bóndi á Skíðbakka í A-Landeyjum, faðir Einars á Steinsstöðum, Guðmundar á Kirkjubæ og Sæmundar á Vilborgarstöðum voru albræður.

Móðir Guðmundar á Kirkjubæ og síðari kona Guðmundar á Skíðbakka var Málhildur húsfreyja, f. 28. júní 1798 í Klasbarðshjáleigu í V-Landeyjum, d. 18. júní 1845 á Skíðbakka, Guðmundsdóttir bónda í Voðmúlastaða-Suðurhjáleigu (Bólstað), f. 1772, d. 21. október 1840 í Suðurhjáleigu, Einarssonar bónda á Skúmsstöðum í V-Landeyjum, f. 1725, d. 29. apríl 1799, Guðmundssonar, og konu Einars á Skúmsstöðum, Ingibjargar húsfreyju, f. 1734, d. 17. ágúst 1817, Guðmundsdóttur.
Móðir Málhildar og fyrri kona Guðmundar í Bólstað var Guðrún húsfreyja, f. 1774, d. 5. október 1805, Jónsdóttir bónda í Vestri-Garðsauka í Hvolhreppi, f. 1750, d. 1793, Atlasonar, og konu Jóns, Kristínar húsfreyju, f. 1715, Bjarnadóttur.

Guðmundur var 7 ára hjá foreldrum sínum á Skíðbakka 1835, 14 ára hjá ekkjunni móður sinni þar 1840. Móðir hans lést 1845. Hann var 17 ára vinnumaður í Búðarhóls-Norðurhjáleigu í A-Landeyjum 1845, vinnumaður á Búðarhóli þar 1850.
Við manntal 1860 var Guðmundur 33 ára tómthúsmaður í Litlakoti í Eyjum með Guðríði konu sinni 35 ára og börnunum Sigríði Guðnýju 4 ára, Einari 3 ára og Oddný 1 árs.
Hann bjó á Kirkjubæ, er hann lést 1865.
Guðmundur var í Herfylkingunni.

Systkini Guðmundar í Eyjum voru:
1. Einar Guðmundsson bóndi á Steinsstöðum, f. 26. mars 1834, hrapaði til bana 27. maí 1858, kvæntur Kristínu Jónsdóttur.
2. Sæmundur húsmaður á Vilborgarstöðum, f. 9. júlí 1837, d. 18. október 1890, fyrr kvæntur Ástríði Hjaltadóttur, síðar Guðbjörgu Árnadóttur.
Móðursystir þeirra bræðra í Eyjum var
Ingibjörg Guðmundsdóttir húsfreyja í Norðurgarði, f. 26. nóvember 1799, d. 29. mars 1883, kona Jóns Jónssonar bónda, f. 1. mars 1791, hrapaði til bana 21. ágúst 1851.

Kona Guðmundar var Guðríður Oddsdóttir húsfreyja í Litlakoti, á Kirkjubæ, ekkja, húskona í Þorlaugargerði, í dvöl á Löndum og í Mandal, f. 1826, d. 18. nóvember 1901.
Börn Guðmundar og Guðríðar hér:
1. Sigríður Guðný Guðmundsdóttir húsfreyja í Mandal, f. 22. apríl 1857, d. 12. maí 1914, gift Jóni Ingimundarsyni.
2. Einar Guðmundsson, f. 1858, d. 19. apríl 1890.
3. Oddur Guðmundsson, f. 28. júní 1860, hrapaði til bana 23. júní 1871.
4. Guðmundur Guðmundsson, f. 6. júlí 1864, d. 24. nóvember 1928, kvæntur Jórunni Magnúsdóttur.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Heimaslóð.is.
  • Íslendingabók.is.
  • Landeyingabók – Austur-Landeyjar. Valgeir Sigurðsson og fleiri. Ritstjóri: Ragnar Böðvarsson. Austur-Landeyjahreppur, Gunnarshólma 1999.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.