Guðmundur Eyjólfsson (Þorlaugargerði)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 14. ágúst 2015 kl. 21:50 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 14. ágúst 2015 kl. 21:50 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Guðmundur Eyjólfsson í Þorlaugargerði, bóndi, bátasmiður, kirkjusmiður, kóngssmiður kallaður, fæddist 1723 og drukknaði 1784.
Foreldrar hans voru Eyjólfur Þorsteinsson bóndi í Uppsölum í Hvolhreppi 1729, f. 1689, og kona hans Helga Bjarnhéðinsdóttir húsfreyja, f. 1685.

Guðmundur naut mikils álits sem smiður. Hann smíðaði kirkjuna á Breiðabólsstað í Fljótshlíð. Einnig var hann fordsmiður við fyrstu byggingu Landakirkju á núverandi stað, en yfirsmiður var Kristófer Berger, þýskur maður. Stóð smíðinn yfir frá 1774-1778.
Guðmundur smíðaði konungsbáta, sem einnig voru kallaðir innstæðubátar á 18. öld. Voru þeir smiðir, sem þá smíðuðu, kallaðir kóngssmiðir.

Guðmundur var tvíkvæntur.
I. Fyrri kona hans var Þorgerður Einarsdóttir húsfreyja frá Svínhaga á Rangárvöllum, f. (1723).
Börn þeirra hér:
1. Brynhildur Guðmundsdóttir húsfreyja, f. 1752.
2. Sr. Bjarnhéðinn Guðmundsson prestur á Kirkjubæ, f. um 1754, d. 20. október 1821.
3. Sr. Einar Guðmundsson prestur í Noregi, f. um 1758, d. 2. desember 1817.
4. Sveinn Guðmundsson bóndi í Þorlaugargerði, f. 1764, d. 5. nóvember 1832.

II. Síðari kona Guðmundar var Valgerður Þorleifsdóttir húsfreyja frá Eyvindarholti u. Eyjafjöllum, f. 1728.
Barn þeirra var
5. Helga Guðmundsdóttir húsfreyja á Vesturhúsum og í Ólafshúsum, f. 1767, d. 30. desember 1846.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.