Guðmundur Ögmundsson (Borg)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Prentvæn útgáfa er ekki lengur studd og gæti verið með myndgerðarvillur. Uppfærðu bókamerki vafrans þíns og notaðu frekar sjálfgefna prentunaraðgerð vafrans.

Guðmundur Ögmundsson fæddist 16. apríl 1833 og lést 27. maí 1914.
Foreldrar hans voru Ögmundur Ögmundsson bóndi í Auraseli í Fljótshlíðarhreppi, f. 30. október 1803, d. 25. maí 1890, og kona hans Guðrún Andrésdóttir, f. 23. apríl 1807, d. 29. júlí 1891.

Guðmundur bjó í húsinu Borg við Stakkagerðistún og var kenndur við húsið, Gvendur í Borg.

Gvendur var járnsmiður.

Gvendur í Borg var einn af sérstöku persónum Eyjanna síns tíma. Oft fóru litlir peyjar með maríufisk sinn til Gvendar og blessaði Gvendur þá gjarnan. Árni Árnason, síðar símritari, fór með sinn maríufisk til Gvendar og spáði Gvendur því að Árni myndi ekki hafa sjómennsku sem lífstíðarstarf, sökum lítilla og grannra handa.I.

I. Barnsmóðir hans var Guðrún Jónsdóttir, f. 1822, d. 29. september 1902.
Barn þeirra:
1. Ástgeir Guðmundsson, f. 27. október 1858, d. 30. september 1943.

II. Kona Guðmundar, (14. maí 1874, skildu), var Margrét Halldórsdóttir, f. 16. janúar 1832, d. 15. febrúar 1919.
Börn þeirra:
2. Júlíus Guðmundur Guðmundsson, f. 16. ágúst 1869, d. 26. janúar 1951.
3. Ögmundur Guðmundsson, f. 27. desember 1872, d. 1. ágúst 1882.


Heimildir

  • Árni Árnason. Tólf ára háseti. Heima er best. 1960.
  • Heimaslóð.
  • Íslendingabók.is.