Guðmundur Ólafsson (Arnardrangi)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Guðmundur Óskar Ólafsson.

Guðmundur Óskar Ólafsson frá Arnardrangi, verslunarmaður, bókari, skrifstofustjóri fæddist 14. júní 1914 á Brekku í Fljótsdal, S.-Múl. og lést 18. mars 1981.
Foreldrar hans voru Ólafur Ó. Lárusson læknir, f. 1. september 1884 á Sjónarhóli á Vatnsleysuströnd, Gull., d. 6. júní 1952 í Eyjum, og kona hans Sylvía Níelsína Guðmundsdóttir húsfreyja, f. 13. ágúst 1883 á Háeyri á Eyrarbakka, d. 22. október 1957.

Börn Sylvíu og Ólafs:
1. Jóhanna Gunnhildur Ólafsdóttir saumakona, f. 24. mars 1907 í Reykjavík, d. 31. júlí 1966. Barnsfaðir hennar Sveinn Benediktsson.
2. Magnús Óskar Ólafsson stórkaupmaður í Reykjavík, f. 29. apríl 1908 í Reykjavík, d. 3. september 1968. Kona hans Guðrún Ólafía Karlsdóttir.
3. Guðrún Ólafsdóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 30. október 1909 í Reykjavík, d. 13. ágúst 1985. Maður hennar Örn Hauksteinn Matthíasson.
4. Lárus Guðmundur Óskar Ólafsson lyfjafræðingur og apótekari á Selfossi, f. 22. október 1911 á Eiðum í Eiðaþinghá, d. 10. apríl 1987. Kona hans, (skildu), Ásdís Lárusdóttir.
5. Sigurður Óskar Ólafsson verslunarmaður í Reykjavík, f. 2. júní 1913 á Brekku í Fljótsdal, S.-Múl., d. 16. nóvember 1955. Fyrrum kona hans Einarína Pálína Árnadóttir. Kona hans Aðalbjörg Vilhjálmsdóttir.
6. Guðmundur Óskar Ólafsson bókari í Reykjavík, f. 14. júní 1914 á Brekku í Fljótsdal, S.-Múl., d. 18. mars 1981. Kona hans Olga Hallgrímsdóttir.
7. Jakob Óskar Ólafsson skrifstofustjóri í Eyjum, síðar í Reykjavík, f. 18. ágúst 1915 á Brekku í Fljótsdal, S.-Múl., d. 18. febrúar 1992. Kona hans Jóhanna María Bjarnasen.
8. Axel Óskar Ólafsson héraðsdómslögmaður, innheimtustjóri í Reykjavík, f. 21. janúar 1917 á Brekku í Fljótsdal, S.-Múl., d. 8. ágúst 1980. Kona hans Þorbjörg Andrésdóttir.
9. Sigríður Sólveig Ólafsdóttir húsfreyja í Reykjavík og Stykkishólmi, f. 7. apríl 1918 á Brekku í Fljótsdal, S.-Múl., d. 14. desember 1945. Maður hennar Kjartan Jónsson.
10. Halldór Óskar Ólafsson loftsiglingafræðingur, flugleiðsögumaður í Reykjavík, f. 19. nóvember 1923 á Brekku í Fljótsdal, S.-Múl. Kona hans Helena Svanhvít Sigurðardóttir.

Guðmundur Óskar var með foreldrum sínum í æsku, á Brekku í Fljótsdal, flutti með þeim til Eyja 1925 og var með þeim 1940.
Hann var verslunarmaður í Eyjum, síðar skrifstofumaður, aðalbókari í Reykjavík.
Guðmundur eignaðist barn með Sigríði 1937.
Þau Olga giftu sig 1945, eignuðust tvö börn. Þau bjuggu fyrst á Akureyri, en síðar í Reykjavík, síðast á Bollagötu 4.
Guðmundur lést 1981 og Olga 2010.

I. Barnsmóðir Guðmundar Óskars var Sigríður Haraldsdóttir frá Garðshorni, síðar húsfreyja á Saltabergi, f. 29. júní 1916, d. 17. febrúar 1993.
Barn þeirra:
1. Ágústa Guðmundsdóttir húsfreyja, kaupmaður, f. 5. janúar 1937, d. 3. nóvember 2016. Maður hennar Guðni Pálsson.

II. Kona Guðmundar Óskars, (13. október 1945), var Olga Þorbjörg Hallgrímsdóttir frá Akureyri, húsfreyja, kjólameistari, bankastarfsmaður, verslunarmaður, f. þar 4. janúar 1917, d. 16. janúar 2010. Foreldrar hennar voru Hallgrímur Einarsson myndasmiður, f. 20. febrúar 1878, d. 26. september 1948, og fyrri kona hans Guðný Marteinsdóttir, f. 30. apríl 1886, d. 7. júní 1928.
Börn þeirra;
2. Sylvía Guðmundsdóttir húsfreyja, sérkennari í Reykjavík, f. 18. desember 1946 á Akureyri. Fyrrum maður hennar Magnús Skúlason.
3. Hallgrímur Guðmundsson stjórnmálafræðingur, fyrrum bæjarstjóri, sérfræðingur í félags- og tryggingamálaráðuneytinu, f. 2. júlí 1948 á Akureyri. Fyrrum kona hans Sigríður Jónsdóttir. Kona hans Helga Pálsdóttir.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.