Guðmundur Ísleifsson (Vilborgarstöðum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Prentvæn útgáfa er ekki lengur studd og gæti verið með myndgerðarvillur. Uppfærðu bókamerki vafrans þíns og notaðu frekar sjálfgefna prentunaraðgerð vafrans.

Guðmundur Ísleifsson bóndi á Vilborgarstöðum fæddist 22. júní 1859 í Litlu-Hildisey í A-Landeyjum og lést 25. desember 1903 á Vilborgarstöðum.
Foreldrar hans voru Ísleifur Ísleifsson frá Bryggjum, vinnumaður í Litlu-Hildisey, f. 12. október 1832, d. 10. janúar 1870 og sambýliskona hans Guðríður Gunnlaugsdóttir vinnukona frá Litlu-Hildisey í A-Landeyjum, f. 14. febrúar 1836, d. 15. maí 1905.

Guðmundur var tökubarn hjá móðurforeldrum sínum í Litlu-Hildisey, en þar voru foreldrar hans vinnufólk. Hann var vinnumaður þar hjá Steinunni móðursystur sinni 1880.
Hann fluttist að Godthaab 1887 og var þar vinnumaður – og 1890, er hann fluttist vinnumaður að Háagarði. Þar var hann í vinnumennsku til 1893, en „sjálfs sín“ þar í lok árs 1893.
Þau Guðrún voru þar gift húsmennskufólk 1894 með barnið Margréti Ísleifu á fyrsta ári.
Þau fluttust að Vilborgarstöðum og bjuggu þar meðan Guðmundi entist líf.
Hann lést 1903.

Kona hans var Guðrún Guðmundsdóttir húsfreyja, f. 24. október 1862, fluttist til Vesturheims 1905.
Barn þeirra hér:
1. Margrét Ísleif Guðmundsdóttir , f. 18. maí 1894, fluttist til Vesturheims 1905.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Landeyingabók – Austur-Landeyjar. Valgeir Sigurðsson og fleiri. Ritstjóri: Ragnar Böðvarsson. Austur-Landeyjahreppur, Gunnarshólma 1999.
  • Manntöl.
  • Vesturfaraskrá 1870-1914. Júníus H. Kristinsson. Sagnfræðistofnun Háskóla Íslands 1983.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.