Guðmunda Valgerður Jónsdóttir (Bifröst)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Guðmunda Valgerður Jónsdóttir frá Búrfelli í Hálsasveit, Borg., húsfreyja fæddist þar 13. desember 1908 og lést 16. október 1978 í Eyjum.
Foreldrar hennar voru Jón Þórðarson frá Andakíl í Borgarfirði, bóndi á Búrfelli, f. 29. september 1863, d. 7. maí 1925, og kona hans Valgerður Guðmundsdóttir frá Auðsstöðum í Hálsasveit í Borg., húsfreyja, f. 23. október 1868, d. 30. október 1948.

Guðmunda var með foreldrum sínum á Búrfelli til 1924, fór að Kaðalsstöðum í Stafholtstungum 1924.
Guðmunda vann síðar í verslun.
Þau Ragnar giftu sig 1938, eignuðust þrjú börn. Þau bjuggu í Vöruhúsinu við Skólaveg 1 við giftingu sína, í Garðhúsum við Kirkjuveg 14 við fæðingu Valgerðar 1938, í Bifröst við Bárustíg 11 1942 og 1949 og síðar á Vesturvegi 29.
Ragnar lést 1968 og Guðmunda Valgerður 1978.

I. Maður Guðmundu Valgerðar, (8. október 1938), var Ragnar Benediktsson frá Borgareyri í Mjóafirði eystra, verkamaður, verkstjóri, vigtarmaður, tónlistarmaður, f. þar 13. mars 1895, d. 7. júní 1968.
Börn þeirra:
1. Valgerður Ragnarsdóttir húsfreyja, f. 7. júlí 1938 í Garðhúsum við Kirkjuveg 14.
2. Benedikt Grétar Ragnarsson sparisjóðsstjóri, f. 22. júlí 1942 í Bifröst við Bárustíg 11, d. 20. júní 1999.
3. María Ragnhildur Ragnarsdóttir húsfreyja, f. 10. ágúst 1949 í Bifröst.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.
  • Mjófirðingasögur. Vilhjálmur Hjálmarsson. Bókaútgáfa Menningarsjóðs 1987-1990.
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.