Guðmunda Margrét Jónsdóttir (Laufholti)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 22. október 2016 kl. 16:45 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 22. október 2016 kl. 16:45 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Guðmunda Margrét Jónsdóttir frá Seljalandi, húsfreyja í Laufholti fæddist 16. mars 1914 á Seljalandi og lést 23. september 1998.
Foreldrar hennar voru Jónína Einarsdóttir húsfreyja, f. 25. mars 1885 í Hlíð u. Eyjafjöllum, d. 22. september 1968, og fyrri maður hennar Jón Guðmundsson sjómaður í Dal, f. 19. september 1878, d. 20. mars 1915.
Síðari maður Jónínu og stjúpfaðir Guðmundu Margrétar var Ísak Árnason sjómaður, verkamaður, f. 24. desember 1897, d. 13. febrúar 1971.

Bræður Guðmundu Margrétar voru:
1. Einar Jónsson sjómaður, verkamaður, f. 17. apríl 1911, d. 30. apríl 1981.
Hálfbróðir hennar, sammæddur, var
2. Jón Þormóður Ísaksson flugmaður, flugumferðarstjóri, f. 28. febrúar 1927, d. 14. maí 2015.

Guðmunda Margrét missti föður sinn, er hún var eins árs. Hún var með móður sinni og Einari bróður sínum á Seljalandi 1920, með þeim, Jóni bróður sínum og Ísaki Árnasyni stjúpföður sínum þar 1930 og 1934.
Hún giftist Ármanni 1934 og bjó hjá móður sinni, var þar með Ármanni manni sínum, börnum sínum Halldóru og Herberti 1940.
Þau Ármann fluttu að Laufholti og bjuggu þar síðan, eignuðust Jónínu þar 1949 og Maríu 1953.

Maður Guðmundu Margrétar, (19. október 1935), var Ármann Bjarnason sjómaður, matsveinn frá Bjarnaborg í Norðfirði, f. 10. nóvember 1910, d. 11. október 1999.
Börn þeirra:
1. Halldóra Ármannsdóttir, f. 8. desember 1935 á Seljalandi.
2. Herbert Ármannsson, f. 1. mars 1939 á Seljalandi.
3. Jónína Ármannsdóttir, f. 3. febrúar 1949 í Laufholti, d. 24. nóvember 1984.
4. María Ármannsdóttir, f. 21. mars 1953 í Laufholti.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.