Guðmunda Ingibergsdóttir (Sandfelli)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Guðmunda Ingibergsdóttir frá Sandfelli, húsfreyja fæddist 2. september 1948.
Foreldrar hennar Ingibergur Gíslason sjómaður, vélstjóri, skipstjóri, f. 16. janúar 1897, d. 15. janúar 1987, og síðari kona hans Lovísa Guðrún Guðmundsdóttir húsfreyja, f. 30. september 1910, d. 29. maí 2000.

Börn Lovísu og Ingibergs:
1. Guðrún Ingibergsdóttir húsfreyja, f. 20. desember 1944 á Sandfelli.
2. Guðmunda Ingibergsdóttir húsfreyja, f. 2. september 1948 á Sandfelli.
Börn Ingibergs og Árnýjar Guðjónsdóttur:
3. Guðjón Ingibergsson sjómaður, f. 25. september 1928 á Þorvaldseyri, d. 16. nóvember 1989.
4. Jónína Margrét Ingibergsdóttir húsfreyja, verkakona, f. 5. júní 1931 á Grímsstöðum, d. 8. desember 2014.
5. Matthías Ingibergsson skipstjóri, útgerðarmaður, f. 22. janúar 1933 á Grímsstöðum, d. 31. október 2006.
6. Inga Hallgerður Ingibergsdóttir , f. 21. maí 1937 í Hvammi, síðast í Hrísey, d. 11. desember 1990.
7. Árný Ingibjörg Ingibergsdóttir, f. 20. júní 1943 á Sandfelli, d. 2. maí 1989.

Guðmunda var með foreldrum sínum.
Þau Ingimar giftu sig 1972, eignuðust fjögur börn.

I. Maður Guðmundu, (24. desember 1972), er Ingimar Jónsson kennari á Stöðvarfirði, f. 17. mars 1945 á Árbæ í Stöðvarfirði. Foreldrar hans Jón Lúðvík Ingimundarson sjómaður, f. 8. febrúar 1922, d. 28. júní 1974, og kona hans Ljósbjörg Petra María Sveinsdóttir húsfreyja, f. 24. desember 1922, d. 10. janúar 2012.
Börn þeirra:
1. Ingibjörg Ingimarsdóttir, f. 25. júlí 1968.
2. Jón Ingi Ingimarsson, f. 2. maí 1972.
3. Anna María Ingimarsdóttir, f. 12. október 1974.
4. Ívar Ingimarsson, f. 20. ágúst 1977.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.
  • Kennaratal á Íslandi. Ólafur Þ. Kristjánsson og fleiri. Prentsmiðjan Oddi 1958-1988.
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.