Guðleif Guðmundsdóttir (Holti)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Prentvæn útgáfa er ekki lengur studd og gæti verið með myndgerðarvillur. Uppfærðu bókamerki vafrans þíns og notaðu frekar sjálfgefna prentunaraðgerð vafrans.
Guðleif Guðmundsdóttir og Vigfús Jónsson.

Guðleif Guðmundsdóttir húsfreyja í Holti fæddist 11. október 1879 og lést 19. ágúst 1922.
Foreldrar hennar voru Guðmundar Þórarinssonar bóndi á Vesturhúsum og kona hans Guðrún Erlendsdóttir.

Guðleif var með foreldrum sínum á Vesturhúsum 1890, gift kona þar 1901.
Við manntal 1910 var hún húsfreyja í Holti með Vigfúsi og fjórum börnum þeirra. 1920 var hún þar með Vigfúsi, sjö börnum þeirra og hjá þeim var ekkjan Guðrún móðir Guðleifar.
Maður Guðleifar var Vigfús Jónsson útgerðarmaður og formaður í Holti, f. 14. júní 1872, d. 26. apríl 1943.

Börn Guðleifar og Vigfúsar:
1. Guðrún húsfreyja, f. 27. september 1901, d. 1957. Hún giftist dönskum manni og bjó í Danmörku.
2. Sigríður Dagný húsfreyja, f. 15. september 1903, d. 5. október 1994.
3. Guðmundur skipstjóri og útgerðarmaður, f. 10. febrúar 1906, d. 6. október 1997.
4. Jón vélstjóri og útgerðarmaður, f. 22. júlí 1907, d. 9. september 1999.
5. Þórdís húsfreyja, f. 29. júlí 1912, d. 15. desember 2004.
6. Guðlaugur útgerðarmaður, f. 16. júlí 1916, d. 27. apríl 1989.
7. Axel öryrki, f. 16. október 1918, d. 16. október 2001.
8. Barn, sem dó nokkru eftir fæðingu.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.