Guðlaugur Jóhannsson (Reykjadal)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Guðlaugur Jóhannsson frá Reykjadal við Brekastíg 5, netagerðarmaður, sjómaður fæddist 29. apríl 1948.
Foreldrar hans voru Jóhann Ármann Kristjánsson frá Reykjadal, sjómaður, vélstjóri, matsveinn, mælaálestrarmaður, f. 29. desember 1915 í Skipholti, d. 6. desember 2002, og kona hans Elín Guðlaugsdóttir frá Sólbergi við Brekastíg 3, húsfreyja, f. 21. apríl 1930, d. 5. júlí 2022.

Börn Elínar og Jóhanns Ármanns:
1. Guðlaugur Jóhannsson netagerðarmaður, sjómaður, f. 29. apríl 1948 á Sólbergi. Kona hans Margrét Jenný Gunnarsdóttir.
2. Ragna Jóhannsdóttir húsfreyja, starfsmaður á elliheimili í Danmörku, f. 6. nóvember 1949 í Baðhúsinu. Maður hennar Jörn Boklund.
3. Guðný Kristín Jóhannsdóttir sjúkraliði í Eyjum, f. 7. júní 1953 í Reykjadal, ógift.
4. Jóhann Ellert Jóhannsson viðskiptafræðingur, fjármálastjóri í Noregi, f. 8. október 1956 á Bessastíg 10. Kona hans Solveig Krusholm.

Guðlaugur var með foreldrum sínum í æsku, í Reykjadal og við Bessastíg 10.
Hann varð netagerðarmaður og sjómaður.
Þau Margrét Jenný giftu sig 1973, eignuðust þrjú börn. Þau bjuggu við Hrauntún 69.
Margrét Jenný lést 2024.

I. Kona Guðlaugs, (desember 1973), var Margrét Jenný Gunnarsdóttir frá Bíldudal, húsfreyja, f. 17. maí 1951, d. 27. mars 2024.
Börn þeirra:
1. Sigríður Elín Guðlaugsdóttir, f. 18. apríl 1973. Maður hennar Bjarnhéðinn Grétarsson.
2. Agnes Guðlaugsdóttir, f. 2. maí 1977. Maður hennar Þorbjörn Víglundsson.
3. Jóhann Ármann Guðlaugson, f. 18. september 1981.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.