Guðlaugur Gíslason (úrsmiður)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Guðlaugur Gíslason.

Guðlaugur Gíslason frá Stykkishólmi, úrsmiður fæddist þar 20. maí 1896 og lést 5. apríl 1972.
Foreldrar hans voru Gísli Bjarnason sjómaður, verkamaður í Stykkishólmi, síðar í Eyjum, f. 9. júní 1863 í Elliðaey á Breiðafirði, d. 10. janúar 1944, og Ólína Guðrún Bjarnadóttir, f. 10. ágúst 1864 í Krossanesi í Eyrarsveit á Snæfellsnesi, d. 16. september 1928.

Guðlaugur lærði úrsmíði hjá Jóhanni Ármanni Jónassyni í Reykjavík. Hann lærði síðar viðgerðir og stillingar á stöðumælum í Svíþjóð með styrk frá Reykjavíkurborg.
Guðlaugur vann hjá Jóhanni Ármanni í tvö ár að námi loknu, fluttist til Eyja 1922, var úrsmiður í Skógum við Bessastíg 8, í Nikhól við Hásteinsveg 38, í Langa-Hvammi við Kirkjuveg 41, á Sandi við Strandveg 63, á Breiðabliki, í Hjarðarholti við Vestmannabraut 69, fóru þaðan 1941 til Reykjavíkur.
Hann rak viðgerðastofu í Reykjavík, hafði á hendi viðgerðir og stillingar á stöðumælum. Guðlaugur hætti störfum vegna heilsubrests 1965.
Þau Kristín giftu sig 1922, eignuðust fjögur börn.
Kristín lést 1959 og Guðlaugur 1972.

I. Kona Guðlaugs, (1922), var Kristín Ólafsdóttir húsfreyja, f. 18. febrúar 1901 í Ólafsvík, d. 5. ágúst 1959. Foreldrar hennar voru Ólafur Árni Bjarnason bóndi, sjómaður, f. 30. mars 1858 í Ólafsvík, d. 12. maí 1930, og kona hans Katrín Hjálmarsdóttir húsfreyja, f. 19. ágúst 1868 í Tungu við Stykkishólm, d. 24. mars 1928.
Börn þeirra:
1. Gísli Gunnar Guðlaugsson fulltrúi, síðast í Reykjavík, f. 17. febrúar 1923 í Skógum, d. 22. desember 1992. Kona hans Guðrún Guðmundsdóttir, látin.
2. Elsa Kristín Guðlaugsdóttir húsfreyja, starfsmaður í mötuneyti, f. 26. mars 1924 í Nikhól, d. 28. júlí 2005. Maður hennar Birgir Helgason, látinn.
3. Ólína Bjarna Guðlaugsdóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 26. júní 1925 í Hjarðarholti, d. 1. nóvember 1979. Fyrri maður hennar Hilmar Emil Jóhannesson, látinn. Síðari maður hennar Helgi Arnlaugsson, látinn.
4. Karl Ólafur Guðlaugsson úrsmiður, kaupmaður, vann við stöðumælaviðgerðir hjá Reykjavíkurborg, f. 3. september 1926 í Langa-Hvammi, d. 22. apríl 1999. Kona hans Sigurdís Halldóra Erlendsdóttir.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Gullsmiðatal 1991. Félag íslenskra gullsmiða. Ritstjóri Stefán B. Stefánsson o.fl.
  • Íslendingabók.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.