Guðlaug Lovísa Einarsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 10. janúar 2019 kl. 15:20 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 10. janúar 2019 kl. 15:20 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Guðlaug Lovísa Einarsdóttir''' húsfreyja á Fáskrúðsfirði fæddist 14. janúar 1911 á Gjábakka og lést 16. maí 1993. <br> Foreldrar hennar voru Einar...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Guðlaug Lovísa Einarsdóttir húsfreyja á Fáskrúðsfirði fæddist 14. janúar 1911 á Gjábakka og lést 16. maí 1993.
Foreldrar hennar voru Einar Þórðarson frá Götu í Holtum, Rang., verkamaður, f. 9. júní 1882, d. 12. febrúar 1925 á Sólheimum og fyrri kona hans Ingunn Jónsdóttir húsfreyja, f. 4. júlí 1885 á Brunnum í Suðursveit, d. 18. júní 1918 á Eiði.

Börn Ingunnar og Einars:
1. Ásgeir Einarsson ráðsmaður, bóndi, síðan iðnverkamaður í Reykjavík, f. 14. febrúar 1907 á Horni í Bjarnanessókn í A-Skaft., d. 23. desember 1983.
2. Óskar Hafsteinn Einarsson, f. 6. september 1908 á Strönd í Stöðvarfirði, d. 27. nóvember 1932.
3. Nanna Einarsdóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 14. janúar 1910 á Strönd í Stöðvarfirði, d. 3. janúar 1997. Hún var alin upp á Skeggjastöðum í Gerðahreppi hjá Guðnýju Gísladóttur og Guðmundi Guðmundssyni skósmið.
4. Guðlaug Lovísa Einarsdóttir húsfreyja á Fáskrúðsfirði, f. 14. janúar 1911 á Gjábakka, síðast á Árbliki í Fáskrúðsfirði, d. 16. maí 1993.
5. Helga Einarsdóttir húsfreyja á bænum Berufirði í Berufirði, S-Múl., f. 10. október 1912 á Nýlendu, d. 13. febrúar 1993.
6. Páll Vídalín Einarsson bifreiðastjóri á Höfn við Hornafjörð, f. 20. nóvember 1914 á Kirkjubæ, d. 13. desember 1988.
7. Svanhvít Kristín Einarsdóttir vinnukona, f. 18. desember 1916 í París, d. 20. maí 1934.
8. Kristinn Ingi Einarsson, f. 10. júní 1918 á Eiðinu, d. 13. nóvember 1945. Hann var fóstraður hjá Guðrúnu Eyjólfsdóttur á Reynivöllum í Suðursveit, A-Skaft., bjó síðast á Hraunbóli í V-Skaft.

Börn Einars Þórðarsonar og Guðrúnar Gísladóttur, síðari konu hans og hálfsystkini Guðlaugar Lovísu:
9. Sveinbjörn Þórarinn Einarsson bifreiðastjóri, f. 19. júlí 1919 á Jaðri, d. 8. desember 1995.
10. Þuríður Einarsdóttir, f. 15. september 1920 á Litlu-Grund, dó óskírð, en nefnd.
11. Þuríður Einarsdóttir, f. 22. maí 1922 á Litlu-Grund, síðar húsfreyja í Reykjavík, d. 14. mars 1992.
12. Ingunn Eyrún Einarsdóttir, f. 28. júní 1925 á Litlu-Grund, finnst ekki síðan og mun hafa dáið ung.

Guðlaug Lovísa var með foreldrum sínum í fyrstu. Þau bjuggu á Gjábakka 1911, Nýlendu 1912, Kirkjubæ 1913-1915 , í París 1916 og á Eiðinu 1917 og 1918. Þau voru síðustu íbúar þar.
Guðlaug missti móður sína sjö ára.
Hún var fósturbarn á Kirkjubóli 1919-1922, fór þá í fóstur til A-Skaft., var vinnukona á Kálfafellsstað, en þar var Ásgeir bróðir hennar þá ráðsmaður, en síðan kaupakona á Eystribænum í Flatey á Mýrum. Þá fluttist hún til Hafnar við Hornafjörð og var hjálparstúlka í Hvamminum hjá Jónínu Jóhannsdóttur og Jóni Jónssyni Brunnan.
Þau Gunnar Þórðarson giftu sig 1934, eignuðust tvö börn, fluttust að Ásbyrgi í Fáskrúðsfirði á heimili foreldra Gunnars. Síðar bjuggu þau á Skólavegi 64. Guðlaug lést 1993.

Maður Guðlaugar Lovísu, (9. september 1934), var Gunnar Ludvig Þórðarson vélstjóri, bifreiðastjóri, vegavinnustjóri, f. 2. október 1910 á Krossalandi í Lóni, A-Skaft., d. 27. desember 1993. Foreldrar hans voru Þóður Jónsson bóndi, sjómaður, f. 24. júní 1888 að Brunnum í Suðursveit, d. 11. desember 1952, og kona hans Rannveig Einarsdóttir frá Þorgeirsstöðum í Lóni, húsfreyja, f. 8. nóvember 1879, d. 8. ágúst 1935. Þórður faðir Gunnars og Ingunn móðir Guðlaugar Lovísu voru systkini.
Börn þeirra:
1. Þóra Rannveig Gunnarsdóttir húsfreyja í Mosfellsbæ, f. 27. apríl 1935. Maður hennar, (skildu), var Ragnar Þorvaldsson.
2. Óskar Ingimar Gunnarsson bifreiðastjóri á Fáskrúðsfirði, f. 23. október 1942. Kona hans var Torfhildur Arnar Friðjónsdóttir.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.