Guðlaug Þorsteinsdóttir (Steinsstöðum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 9. maí 2015 kl. 12:10 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 9. maí 2015 kl. 12:10 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Guðlaug Þorsteinsdóttir vinnukona á Steinsstöðum fæddist 1767 og lést 3. október 1820 á Steinsstöðum.
Guðlaug var vinnukona í Bakkahjáleigu í A-Landeyjum 1797 við fæðingu Önnu, í Miðey þar 1801.
Hún var komin til Eyja 1814, var þá vinnukona í Stakkagerði, og enn 1816, (húsvitjun skortir 1817-1819).
Guðlaug lést á Steinsstöðum 1820, sveitarómagi.

I. Barnsfaðir og ókunnur.
1. Barn ókunnugt, en prestur skráði, að fæðing Önnu væri 2. brot Guðlaugar.

II. Barnsfaðir hennar var Þorbjörn Jónsson, þá vinnumaður í Bakkahjáleigu í A-Landeyjum, síðar tómthúsmaður í Dalahjalli.
Barn þeirra var
2. Anna Þorbjörnsdóttir húsfreyja í Dalahjalli, f. 1797, d. 11. mars 1849.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.