Guðjón Jónsson eldri (Dölum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Prentvæn útgáfa er ekki lengur studd og gæti verið með myndgerðarvillur. Uppfærðu bókamerki vafrans þíns og notaðu frekar sjálfgefna prentunaraðgerð vafrans.

Guðjón Jónsson eldri, bóndi í Dölum, fæddist 4. ágúst 1862 og lést 29. júní 1900.
Foreldrar hans voru Jón Þorkelsson tómthúsmaður og sjómaður í Grímshjalli, f. 18. september 1826, d. 10. september 1864, og kona hans Sesselja Arnoddsdóttir húsfreyja, f. 28. febrúar 1827, d. 22. júní 1888.

Föðurmóðir Guðjóns var Gyðríður Sveinsdóttir. Föðursystkini Guðjóns í Eyjum voru því:
1. Sveins Hjaltasonar bóndi og hafnsögumaður á Vesturhúsum, f. 3. desember 1815, d. 23. júní 1879.
2. Sigríður Hjaltadóttir vinnukona í Nýjabæ, f. 9. ágúst 1818, d. 9. desember 1880.
3. Filippus Hjaltason vinnumaður í Nöjsomhed, f. 12. maí 1820, d. 15. maí 1847 á Gjábakka.
4. Eyjólfur Hjaltason tómthúsmaður, bókbindari á Löndum, f. 19. desember 1821, d. 30. desember 1884.
5. Björn Hjaltason sjómaður, f. 10. júní 1823, drukknaði 26. mars 1842,
og albróðir
6. Guðmundur Þorkelsson vinnumaður á Vesturhúsum, f. 2. mars 1828, d. 7. mars 1859.

Guðjón var með ekkjunni móður sinni í Grímshjalli 1870, 18 ára vinnumaður á Ofanleiti 1880.
Hann var bóndi í Dölum 1890 með Margréti og sonunum Sóphusi Guðjóni 3 ára og Guðjóni eins árs.
Guðjón lést 1900.

Kona Guðjóns, (16. október 1887), var Margrét Sigurðardóttir frá Steinsstöðum, f. 28. júní 1855, d. 23. desember 1893.
Börn þeirra hér:
1. Sophus Guðjón Guðjónsson, f. 24. desember 1886. Hann var með foreldrum sínum 1890. Hann fór til náms 1901 undir nafninu Sófus Guðjónsson.
2. Sigurjón Guðjónsson, f. 10. desember 1888, d. 17. október 1895.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.