Guðjón Friðriksson (Látrum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Guðjón Friðriksson frá Látrum, sjómaður fæddist 31. ágúst 1912 og drukknaði 30. mars 1932.
Foreldrar hans voru Friðrik útvegsbóndi og formaður á Látrum, f. 7. desember 1868 í Dyrhólahjáleigu í Mýrdal, d. 29. október 1940 og kona hans Sigurína Katrín húsfreyja, f. 7. maí 1884 í Grindavíkursókn, d. 26. desember 1922.

Börn Sigurínu og Friðriks:
1. Brynjólfur Kristinn stórkaupmaður, f. 2. júlí 1911, d. 1. apríl 1984.
2. Guðjón, f. 31. ágúst 1912, d. 30. mars 1932.
3. Ármann formaður, útgerðarmaður, f. 21. nóvember 1914, d. 11. nóvember 1989.
4. Klara Friðriksdóttir húsfreyja á Látrum, f. 26. september 1916, d. 30. desember 2008.
5. Ólafía, f. 26. september 1916, d. 22. desember 1993.
6. Ingibjörg Friðriksdóttir, f. 25. júlí 1919, d. 26. febrúar 1920.
Fósturbörn Sigurínu og Friðriks voru:
1. Haukur Lárusson Johnsen, f. 17. nóvember 1914, d. 17. maí 1957. Hann var sonur Kristins Lárusar Johnsen frá Frydendal, f. 31. desember 1884, d. 15. október 1930, og Guðlaugar Oddgeirsdóttur frá Ofanleiti, f. 20. janúar 1885, d. 21. desember 1966.
2. Sigurjóna Ólafsdóttir húsfreyja, f. 23. apríl 1916, d. 24. nóvember 1981, dóttir Ólafs Ingileifssonar formanns, f. 9. júní 1891, d. 14. febrúar 1968, og fyrstu konu hans Sigurjónu Sigurjónsdóttur húsfreyju, f. 26. maí 1897, d. 22. nóvember 1918. Maður Sigurjónu í Görðum var Björn Guðmundsson kaupmaður og útgerðarmaður.

Guðjón var með foreldrum sínum, á Látrum 1930.
Hann féll fyrir borð á vélbátnum Hörpu 30. mars 1932 og drukknaði.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.