Guðjón Bjarnason (Bæ)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 6. mars 2020 kl. 11:58 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 6. mars 2020 kl. 11:58 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Guðjón Bjarnason''' frá Bæ í Lóni, bóndi, síðar verkamaður í Eyjum fæddist 24. október 1875 á Stafafelli í Lóni og lést 25. nóvember 1938 í Eyjum.<br> Foreldrar...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Guðjón Bjarnason frá Bæ í Lóni, bóndi, síðar verkamaður í Eyjum fæddist 24. október 1875 á Stafafelli í Lóni og lést 25. nóvember 1938 í Eyjum.
Foreldrar hans voru Bjarni Jónsson bóndi í Hraunkotshjáleigu í Lóni, f. 18. maí 1849 í Vík þar, d. 9. maí 1901, og kona hans Hólmfríður Þorsteinsdóttir húsfreyja, f. 31. maí 1843 í Tunguhlíð í Álftafirði í S-Múl., d. 18. apríl 1916.

Guðjón var með foreldrum sínum í Hraunkoti í Lóni 1880-1897, vinnumaður hjá ekkjunni Sigríði Eiríksdóttur móður Guðnýjar Sigmundsdóttur 1897-1901.
Guðný og Guðjón voru í Bæ hjá Hólmfríði móður hans 1902, með nýfæddan son sinn þar 1903.
Þau Guðjón giftu sig 1903, eignuðust sex börn, misstu eitt þeirra níu ára gamalt.
Þau voru húsfólk í Bæ 1906 og 1907, bændur þar 1908-1934, er þau fluttu til Eyja og bjuggu á Urðavegi 41 í húsi Eiríks Ásbjörnssonar og Ragnhildar meðan báðum entist líf.
Guðjón vann verkamannastörf í Eyjum.
Hann lést 1938 í Eyjum og Guðný 1966 í Reykjavík.

I. Kona Guðjóns, (16. júní 1903), var Guðný Sigmundsdóttir frá Bæ, húsfreyja, f. 20. desember 1875, d. 1. apríl 1966.
Börn þeirra:
1. Ásmundur Guðjónsson forstjóri, f. 31. desember 1903, d. 12. júní 1964. Kona hans Anna Friðbjarnardóttir.
2. Bjarni Guðjónsson á Hofi, myndskeri, listmálari, kennari, f. 27. maí 1906, d. 11. október 1986. Kona hans Sigríður Þorláksdóttir.
3. Hjalti Guðjónsson, f. 21. maí 1928, d. 24. nóvember 1917.
4. Ólöf Hulda Guðjónsdóttir húsfreyja í Reykjavík, síðast á Hraunvangi 7 í Hafnarfirði, f. 19. apríl 1913, d. 13. apríl 2008. Fyrri maður hennar Sigfús Sigfússon. Síðari maður Sæmundur Þórarinsson.
5. Hjördís Þorbjörg Guðjónsdóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 22. apríl 1921, d. 26. september 2000. Fyrri maður Sigurbjörn Eiríksson. Síðari maður Sverrir Einar Egilsson.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.