Guðfinna Sigurlilja Eyvindsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 22. september 2016 kl. 21:02 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 22. september 2016 kl. 21:02 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Prentvæn útgáfa er ekki lengur studd og gæti verið með myndgerðarvillur. Uppfærðu bókamerki vafrans þíns og notaðu frekar sjálfgefna prentunaraðgerð vafrans.
Guðfinna Sigurlilja Eyvindsdóttir.

Guðfinna Sigurlilja Eyvindsdóttir (Stella) húsfreyja fæddist 3. desember 1921 á Strandbergi og lést 21. maí 2013 á Sjúkrahúsinu.
Foreldrar hennar voru Eyvindur Þórarinsson formaður, hafnsögumaður, f. 13. apríl 1892, d. 25. ágúst 1964, og kona hans Sigurlilja Sigurðardóttir húsfreyja, f. 21. desember 1891, d. 19. október 1974.

Börn Eyvindar og Sigurlilju voru:
1. Sigríður Ingibjörg, f. 26. ágúst 1913 á Oddsstöðum, d. 20. mars 1933.
2. Hans Ottó, f. 17. október 1914 á Oddsstöðum, d. 13. nóvember 1914.
3. Hans Björgvin, f. 14. júní 1916 á Fögrubrekku, d. 15. nóvember 1916.
4. Elías Þórarinn, f. 14. júní 1916 á Fögrubrekku, d. 16. marz 1980.
5. Guðný Laufey, f. 19. desember 1917 á Strandbergi, d. 1. desember 1987.
6. Guðfinna Sigurlilja, f. 3. desember 1921 á Strandbergi, d. 21. maí 2013.
7. Jóna Sigríður, f. 17. ágúst 1923 á Fögrubrekku, d. 17. febrúar 1927.
8. Þórarinn Guðlaugur, f. 11. október 1925 í Eyvindarholti, d. 26. nóvember 1976.

Guðfinna var með fjölskyldu sinni á Strandbergi 1921 og 1922, á Fögrubrekku 1923, í Eyvindarholti, (Blómsturvöllum, Brekastíg 7c) 1924 og enn 1927, á Vestmannabraut 67, (Nýja-Bergholti) 1930, Vegbergi, (Skólavegi 32) 1934.
Hún var með foreldrum sínum í Valhöll, (Strandvegi 67) 1940 með dóttur sinni. Þau Þorsteinn voru með þeim í Valhöll 1945, eignuðust Elísu í Valhöll 1946.
Þau fluttust til Kaupmannahafnar þar sem Þorsteinn nam við Köbenhavn Navigationsskole 1947.
Þau fluttust til Reykjavíkur þar sem Þorsteinn varð kennari við Stýrimannaskólann frá 1948.
Þau eignuðust Eygló í Reykjavík.
Þorsteinn lést 1960.
Guðfinna giftist Karli Jónssyni frá Háagarði og bjó með honum í Eyjum. Hann lést 2011.
Guðfinna Sigurlilja lést 2013.

Guðfinna var tvígift.
I. Fyrri maður hennar var Þorsteinn Kristján Þórðarson skipstjóri, stýrimannaskólakennari, f. 8. mars 1917, d. 30. maí 1960.
Börn þeirra:
1. Lilja Þorsteinsdóttir húsfreyja í Eyjum, f. 7. júlí 1940 í Valhöll.
2. Aðalheiður Laufey Þorsteinsdóttir húsfreyja í Reykjavík, bankastarfsmaður, f. 6. desember 1941 í Valhöll.
3. Elísa Þorsteinsdóttir húsfreyja í Reykjavík, flugfreyja, f. 28. ágúst 1946 í Valhöll.
4. Eygló Þorsteinsdóttir húsfreyja í Keflavík, viðskiptafræðingur, kaupmaður, umboðsmaður, f. 30. mars 1951 í Reykjavík, d. 25. desember 2006.

II. Síðari maður Guðfinnu Sigurlilju var Karl Jónsson rakari, kaupmaður, lögreglumaður frá Háagarði, f. 11. desember 1919, d. 1. maí 2011.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.