Guðbrandur Guðbrandsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 14. október 2016 kl. 14:10 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 14. október 2016 kl. 14:10 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Guðbrandur Guðbrandsson sjómaður á Fögruvöllum fæddist 3. ágúst 1832 í Pétursey í Mýrdal og lést 28. maí 1866 í Stakkagerði.
Foreldrar hans voru Guðbrandur Jónsson bóndi í Pétursey og á Syðsta-Fossi í Mýrdal, f. 1802, d. 21. maí 1840, og kona hans, Gróa Vigfúsdóttir húsfreyja, f. 1798, d. 23. september 1843.

Guðbrandur var systursonur Sigurðar Vigfússonar á Steinsstöðum.

Guðbrandur var með foreldrum sínum til 1840, var niðursetningur í Eyjarhólum í Mýrdal 1840-1841.
Hann fluttist til Eyja 1841 og var tökubarn hjá móðurbróður sínum á Steinsstöðum næstu árin, skráður fósturdrengur þar 1847, fósturpiltur þar 1848.
Guðbrandur var vinnumaður á Steinsstöðum 1849 og 1850, í Dölum 1851, í Frydendal 1852-1854.
1855 og 1856 var hann vinnumaður í Nýja-Kastala og þar var Margrét Hannesdóttir vinnukona.
Þau Margrét voru á Fögruvöllum 1857, hún bústýra hans. Þau eignuðust Jón 1858 og Sigurð Guðjón 1863, en hann var heyrnar-og mállaus. Þau bjuggu á Fögruvöllum til 1865, en þá fluttust þau að Oddsstöðum.
Þau voru í Stakkagerði 1866, er Guðbrandur lést „úr krampa ásamt kvefsótt“.

Kona Guðbrandar, (9. nóvember 1862), var Margrét Hannesdóttir húsfreyja, f. 22. júní 1833 í Hraunkoti í Landbroti, d. 28. október 1887 á Löndum.
Börn þeirra hér:
1. Jón Guðbrandsson, f. 14. janúar 1858, hrapaði til bana 2. júlí 1868.
2. Sigurður Guðjón Guðbrandsson, heyrnar- og mállaus, f. 9. janúar 1863, d. 23. ágúst 1873.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.