Guðbjörn Guðjónsson (Reykjum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 13. mars 2018 kl. 15:13 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 13. mars 2018 kl. 15:13 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Verndaði „Guðbjörn Guðjónsson (Reykjum)“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn)))
Fara í flakk Fara í leit
Guðbjörn Guðjónsson.

Guðbjörn Guðjónsson frá Reykjum, vélvirkjameistari fæddist 14. apríl 1924 í Ásbyrgi og lést 24. apríl 2012.
Foreldrar hans voru Guðjón Jónsson skipstjóri, verkamaður, slátrari, f. 10. febrúar 1892 á Selalæk á Rangárvöllum, d. 14. maí 1967, og kona hans Bergþóra Jónsdóttir húsfreyja, f. 10. október 1894 í Syðra-Bakkakoti u. A-Eyjafjöllum, d. 20. desember 1989.

Börn Bergþóru og Guðjóns:
1. Jón Óskar Guðjónsson, f. 26. júní 1917 í Steinum u. Eyjafjöllum, d. 25. apríl 1940 ú berklum.
2. Guðmundur Guðjónsson rekstrarstjóri í Kópavogi, f. 9. febrúar 1920, d. 5. ágúst 2008.
3. Þórhallur Ármann Guðjónsson, f. 8. febrúar 1921 á Eystri-Gjábakka, d. 14. maí 1921.
4. Jóhanna Guðjónsdóttir húsfreyja, sjúkraliði, f. 5. júní 1922 í Ásbyrgi.
5. Guðbjörn Guðjónsson vélvirkjameistari, f. 14. apríl 1924 í Ásbyrgi, d. 24. apríl 2012.
6. Þorleifur Guðjónsson skipstjóri, f. 23. júní 1926 á Reykjum, d. 24. nóvember 1974.
7. Magnús Guðjónsson bifreiðastjóri, f. 24. janúar 1929 á Reykjum.
8. Þórhallur Ármann Guðjónsson verkstjóri, f. 27. október 1931 á Reykjum.
9. Lilja Guðjónsdóttir, f. 10. apríl 1933 á Reykjum, d. 3. janúar 1941.
10. Haukur Guðjónsson bifreiðastjóri, f. 13. mars 1938 á Reykjum.

Guðbjörn sat einn vetur í Gagnfræðaskólanum, var sjómaður á vertíð 1941. Hann tók vélstjórapróf 1942 og var um skeið vélstjóri.
Guðbjörn fór í nám hjá Vélsmiðjunni Héðni árið 1943, samhliða námi í Iðnskólanum í Reykjavík, fékk sveinsréttindi í vélvirkjun 1949, meistararéttindi 1953.
Hann vann á vegum Héðins víðsvegar um land við uppsetningar á frystihúsum og fiskimjölsverksmiðjum, var verksmiðjustjóri í Fiskimjölsverksmiðju Eskifjarðar 1962-1970. Hann lauk starfsferli sínum hjá sjávarafurðadeild Sambands íslenskra samvinnufélaga.
Þau Katrín giftu sig 1948, bjuggu í Reykjavík, en síðan í Garðabæ, eignuðust eitt barn.
Katrín lést 2009 og Guðbjörn 2012.

I. Kona Guðbjörns, (8. júní 1948), var Katrín Valtýsdóttir húsfreyja, f. 8. júní 1923 í Vallholti á Árskógsströnd, d. 16. október 2009. Foreldrar hennar voru Valtýr Jónsson frá Hrafnagili í Þorvaldsdal í Eyjafirði, f. 28. september 1895, d. 29. október 1976, og Rakel Jóhanna Jóhannsdóttir frá Selárbakka á Árskógsströnd, f. 28. ágúst 1891, d. 17. nóvember 1958.
Barn þeirra:
1. Bergþóra Guðbjörnsdóttir, f. 20. september 1947. Hún býr í Bandaríkjunum. Maður hennar er Karl Ásmundsson.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Manntöl.
  • Morgunblaðið 4. maí 2012. Minning.
  • Prestþjónustubækur.
  • Skýrsla um Gagnfræðaskólann í Vestmannaeyjum skólaárin 1930-1943.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.