Guðbjörg Vigdís Guðmundsdóttir (Hamri)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 1. nóvember 2017 kl. 20:31 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 1. nóvember 2017 kl. 20:31 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Guðbjörg Vigdís Guðmundsdóttir húsfreyja á Hamri fæddist 12. desember 1889 í Hagasókn í V-Barðastrandarsýslu og lést 25. ágúst 1924.
Foreldrar hennar voru Guðbjörg Guðmundsdóttir vinnukona, f. 12. maí 1862, d. 22. ágúst 1890 og Guðmundur Jónsson húsmaður á Hreggstöðum 1890, f. 2. september 1855, d. 23. maí 1929.

Hún var eins árs tökubarn í Sigluvík á Barðaströnd 1890, tökubarn hjá sama fólki á Skriðnafelli þar 1901.
Hún fluttist til Eyja frá Hafnarfirði 1912 og var vinnukona í Hraungerði á því ári, en Helgi var þar leigjandi.
Þau Helgi giftu sig 1913 og bjuggu á Löndum til 1916, á Túnsbergi 1917-1918, í Fagurhól 1919-1920 við fæðingu Hjálmars Kristins, en komin á Hamar í lok ársins. Þau eignuðust fjögur börn.
Guðbjörg Vigdís lést 1924 viku eftir barnsfæðingu.

I. Maður Guðbjargar Vigdísar, (20. desember 1913), var Helgi Hjálmarsson sjómaður, trésmiður, síðar bóndi, f. 13. október 1880, d. 6. apríl 1976.
Börn þeirra voru:
1. Hermann Helgason vélstjóri, f. 30. janúar 1916 á Löndum, d. 5. júlí 2006. Kona hans var Sigurlaug Guðmundsdóttir.
2. Magnús Helgason, f. 5. júlí 1917 á Túnsbergi, síðast í Reykjavík, d. 3. janúar 1992.
3. Hjálmar Kristinn Helgason sjómaður í Reykjavík, f. 16. júní 1920 í Fagurhól, d. 22. nóvember 1993. Kona hans var Elín Sumarliðadóttir.
4. Gunnar Ágúst Helgason á Lögbergi, sjómaður, vélstjóri, forstöðumaður, f. 22. janúar 1923 á Hamri, d. 23. nóvember 2000. Kona hans var Ingibjörg Lovísa Guðjónsdóttir.
5. Guðbjörg Helgadóttir Beck húsfreyja á Seltjarnarnesi, f. 18. ágúst 1924 á Hamri, d. 28. maí 2013. Maður hennar var Páll Beck.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Borgfirzkar æviskrár. Margir höfundar. Sögufélag Borgarfjarðar 1969-2007.
  • Íslendingabók.is.
  • Landeyingabók – Austur-Landeyjar. Valgeir Sigurðsson og fleiri. Ritstjóri: Ragnar Böðvarsson. Austur-Landeyjahreppur, Gunnarshólma 1999.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.