Guðbjörg Jónína Jónsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 1. febrúar 2016 kl. 16:48 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 1. febrúar 2016 kl. 16:48 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Verndaði „Guðbjörg Jónína Jónsdóttir“ (‎[edit=sysop] (ótiltekinn)))
Fara í flakk Fara í leit

Guðbjörg Jónína Jónsdóttir frá Kirkjubæ, síðar í Utah fæddist 30. mars 1884.
Foreldrar hennar voru Jón Jónsson frá Oddsstöðum, síðar í Utah, f. 22. janúar 1857, d. 26. september 1930, og kona hans Vilborg Jónsdóttir úr Mýrdal, húsfreyja á Kirkjubæ, síðar í Utah, f. 28. febrúar 1855, d. 17. desember 1943.

Börn Vilborgar og Jóns voru:
1. Helgi Guðjón Jónsson, f. 27. ágúst 1880, d. 20. júlí 1882 úr mislingum.
2. Guðbjörg Jónína Jónsdóttir, f. 30. mars 1884. Hún fluttist til Utah 1887.
3. Vilhjálmur Bjarni Jónsson, f. 22. desember 1886. Hann lést í hafi og var jarðsettur þar.
Í Utah eignuðust þau
4. William.
5. Rose.
6. Marinus.
7. Morgan.

Jónína var með foreldrum sínum og fluttist með þeim frá Hólshúsi til Utah 1887.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Prestþjónustubækur.
  • The Icelanders of Utah. La Nora Allred.
  • Vesturfaraskrá 1870-1914. Júníus H. Kristinsson. Sagnfræðistofnun Háskóla Íslands 1983.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.