Guðbjörg Hjörleifsdóttir (Skálholti)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 22. janúar 2020 kl. 17:44 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 22. janúar 2020 kl. 17:44 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Guðbjörg Marta Hjörleifsdóttir''' frá Skálholti við Landagötu, húsfreyja, verkakona fæddist þar 20. júlí 1932.<br> Foreldrar hennar voru Hjörleifur Sv...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Guðbjörg Marta Hjörleifsdóttir frá Skálholti við Landagötu, húsfreyja, verkakona fæddist þar 20. júlí 1932.
Foreldrar hennar voru Hjörleifur Sveinsson frá Selkoti u. Eyjafjöllum, sjómaður, útgerðarmaður, f. 23. janúar 1901, d. 29. september 1997, og kona hans Þóra Arnheiður Þorbjarnardóttir frá Eskifirði, húsfreyja, f. 18. október 1903, d. 6. júlí 1970.

Börn Þóru og Hjörleifs:
1. Sveinn Hjörleifsson skipstjóri, útgerðarmaður, f. 1. ágúst 1927, d. 4. janúar 2004. Kona hans Aðalheiður Pétursdóttir.
2. Anna Hjörleifsdóttir húsfreyja, póstvarðstjóri í Reykjavík, f. 31. mars 1929, d. 21. febrúar 2018. Maður hennar Sigmundur Páll Lárusson.
3. Friðrik Ágúst Hjörleifsson sjómaður, útgerðarmaður, bifreiðastjóri, f. 16. nóvember 1930 í Skálholti, d. 7. október 2014. Kona hans Anna Jóhanna Oddgeirs.
4. Guðbjörg Marta Hjörleifsdóttir húsfreyja, f. 20. júlí 1932 í Skálholti. Maður hennar Egill Kristjánsson.
5. Drengur, f. 7. mars 1940, d. sama dag.

Guðbjörg var með foreldrum sínum í æsku.
Hún vann verkakvennastörf í fiskiðnaði.
Þau Egill giftu sig 1954, eignuðust fimm börn, en misstu eitt þeirra tveggja mánaða gamalt. Þau byggðu Ásaveg 24 1953 og bjuggu þar til Goss. Síðar bjuggu þau í Birkihlíð 4

I. Maður Guðbjargar, (31. október 1954), var Egill Kristjánsson frá Stað, húsasmíðameistari, f. 14. október 1927, d. 21. ágúst 2015.
Börn þeirra:
1. Þóra Hjördís Egilsdóttir, f. 18. júlí 1953 í Skálholti.
2. Drengur, f. 16. janúar 1955, d. 17. mars 1955.
3. Kristján Egilsson, f. 3. maí 1956 að Ásavegi 24.
4. Guðjón Egilsson, f. 30. júlí 1957 á Ásavegi 24.
5. Sigurbjörn Egilsson, f. 6. júlí 1963.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.