Guðbjörg Bessadóttir (Litlu-Löndum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Prentvæn útgáfa er ekki lengur studd og gæti verið með myndgerðarvillur. Uppfærðu bókamerki vafrans þíns og notaðu frekar sjálfgefna prentunaraðgerð vafrans.
Guðbjörg Bessadóttir.

Guðbjörg Bessadóttir húsfreyja í Norðfirði og Litlu-Löndum fæddist 27. nóvember 1871 í Geitdal í Skriðdal, S-Múl. og lést 26. desember 1939.
Faðir hennar var Bessi vinnumaður víða, m.a. í Mjóafirði eystra, f. 1829, d. 15. júlí 1889, Jónsson húsmanns á Krossstekk í Mjóafirði 1835, f. 1776 á Geldingi í Breiðdal, d. 7. júní 1838, Bessasonar.
Móðir Guðbjargar var Sigríður vinnukona víða á Austurlandi, á Héraði og niðri á Fjörðum þar, f. 20. apríl 1836, d. 19. desember 1892, Runólfsdóttir bónda á Holtum á Mýrum, A-Skaft. 1840, f. 1797 á Hafnarnesi í Bjarnanessókn í A-Skaft., Jónssonar húsmanns á Hafnarnesi 1816, f. 1755, d. 28. janúar 1831, Högnasonar, og síðari konu Jóns Högnasonar, Steinunnar húsfreyju, f. 1764 í Holtaseli á Mýrum, A-Skaft., Runólfsdóttur.
Móðir Sigríðar og kona Runólfs var Dýrleif húsfreyja í Holtum á Mýrum í A-Skaft. 1840, f. 1795, Jónsdóttir bónda á Breiðabólsstað í Suðursveit, f. um 1773, d. fyrir mt. 1801, Steinssonar, og konu Jóns Steinssonar, Gunnvarar húsfreyju, f. 1774, d. 14. janúar 1834, Ásgrímsdóttur.

Guðbjörg var á Brekku í Mjóafirði eystra 1880, á Krossi þar 1891. Hún var bústýra Sveins Bjarnasonar í Viðfirði 1900, aðkomandi á Miðhúsum á Héraði 1901, húskona í Nesi í Norðfirði 1912 með börnin Sigmar Axel og Sigurberg hjá sér.
Guðbjörg fluttist til Eyja 1923 með Rafni Júlíusi Símonarsyni frá Norðfirði, f. 1. júlí 1866, d. 9. júlí 1933 og bjuggu þau á Landagötu 15 B, (Löndum eystri/Litlu-Löndum) 1930 og hjá þeim var Guðbjörg Sveinsdóttir, sonardóttir Guðbjargar, f. 11. nóvember 1928 á Norðfirði.

I. Barnsfaðir Guðbjargar var Hallgrímur Björnsson, bóndi á Miðhúsum í Eiðasókn 1901, fór til Vesturheims 1903, síðar timburmeistari í Riverton í Manitoba, f. 18. ágúst 1871 í Fellssókn, d. 7. apríl 1956.
Barn þeirra:
1. Sigmar Hallgrímur Hallgrímsson, f. 14. september 1891 á Krossi í Mjóafirði eystra, d. 8. janúar 1905 á Hallfreðarstöðum í Hróarstungu.

II. Barnsfaðir hennar var Benedikt Davíðsson vinnumaður á Bakka í Bakkafirðir, f. 23. september 1861, d. 15. nóvember 1901.
Barn þeirra:
2. Sigurberg Benediktsson verkamaður, f. 7. apríl 1898, d. 28. janúar 1965.

III. Sambúðarmaður Guðbjargar var Jón ,,eldri” Jónsson beykir og verkamaður á Eskifirði, bjó á Efra-Hóli og í Jensenhúsi á Eskifirði, f. 18. september 1860 á Ingveldarstöðum á Reykjaströnd, d. 28. febrúar 1941 á Eskifirði. Foreldrar hans voru Jón Bergsson skipstjóri, f. 3. júlí 1830 í Hvammi í Fljótum, Skagaf., d. í Þýskalandi, og Áslaug Hannesdóttir vinnukona, húsfreyja, f. 15. mars 1832 á Reykjahóli hjá Víðimýri í Skagaf., d. 21. mars 1901.
Börn þeirra:
3. Sigmar Axel Jónsson verkamaður á Litlu-Löndum í Eyjum, f. 14. maí 1906, d. 24. júlí 1985.
4. Maríus Jónsson vélstjóri í Reykjavík, f. 25. nóvember 1908 á Norðfirði, d. 20. október 1994. Kona hans María Kristín Pálsdóttir.

IV. Barnsfaðir Guðbjargar var Sveinn Bjarnason bóndi, snikkari í Viðfirði, S-Múl., f. 12. júlí 1857, d. 24. desember 1927.
Barn þeirra:
5. Sigurður Sveinn Sveinsson sjómaður í Reykjavík, f. 16. september 1900 í Viðfirði, d. 29. apríl 1941. Kona hans Anna Herborg Guðmundsdóttir.

V. Sambúðarmaður Guðbjargar var Rafn Júlíus Símonarson sjómaður, f. 1. júlí 1866 á Lýtingsstöðum í Skagaf., d. 9. júlí 1933.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.