Guðbjörg Þorsteinsdóttir (Fögruvöllum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 26. júlí 2015 kl. 10:08 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 26. júlí 2015 kl. 10:08 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Guðbjörg Þorsteinsdóttir húsfreyja á Fögruvöllum fæddist 1788 á Sævarhólum í Suðursveit, A-Skaft. og lést 28. nóvember 1844.

Hún var líklega vinnukona á Kálfafelli í Suðursveit 1801, ekkja á Leiðvelli í Meðallandi 1816, var vinnukona í Mörtungu á Síðu 1818-1820, í Hörgsdal þar 1820-1822, á Breiðabólsstað þar 1822-1923, í Eystri-Tungu í Landbroti 1823-1824, fór þá að Skurðbæ í Meðallandi, en kemur ekki fram í bókum þar.
Guðbjörg var „haustkona“ í Kastala við fæðingu Hólmfríðar 1826, var bústýra hjá Guðmundi Þorgeirssyni í Kokkhúsi 1828, finnst ekki 1829 né 1830.
Guðbjörg og Guðlaugur fluttust til Eyja 1831, „tómthúsfólk“... „af Landi“. Þau voru skráð í Fagurhól (svo) á mt. 1835, en fyrr og síðar á Fögruvöllum.

I. Ókunnur maður látinn fyrir 1816.

II. Barnsfaðir hennar var Árni Magnússon frá Ártúnum á Rangárvöllum, þá vinnumaður í Kornhól.
Barn þeirra var
1. Hólmfríður Árnadóttir, f. 16. ágúst 1826, d. 21. ágúst 1826 úr ginklofa.

III. Maður hennar, (24. júní 1832), var Guðlaugur Guðlaugsson tómthúsmaður og sjómaður á Fögruvöllum, f. 1788, d. 30. september 1848.
Þau voru barnlaus.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.
  • Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.