Guðrún Hallsdóttir (Þorlaugargerði)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 31. mars 2014 kl. 17:23 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 31. mars 2014 kl. 17:23 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Guðrún Hallsdóttir''' húsfreyja í Norðurgarði og Þorlaugargerði fæddist 8. ágúst 1794 í Norðurgarði á Skeiðum og lést í Utah.<br> Foreldra...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Guðrún Hallsdóttir húsfreyja í Norðurgarði og Þorlaugargerði fæddist 8. ágúst 1794 í Norðurgarði á Skeiðum og lést í Utah.
Foreldrar hennar voru Hallur Vigfússon bóndi í Norðurgarði, f. 1768, d. 3. júlí 1809, og kona hans Guðrún Sigmundsdóttir húsfreyja, f. 1765, d. 1. desember 1806.

Guðrún var ógift vinnukona á Ofanleiti 1816 og enn 1822, gift húsmanni þar 1823, 1824 og til vors 1825, en þau Jón voru bændur í Brekkuhúsi við fæðingu Guðrúnar í nóvember það ár. Þau Jón höfðu eignast 8 börn, en 5 þeirra dóu úr ginklofa og eitt líklega einnig úr þeim sjúkdómi, (en prestarnir kölluðu ginklofann oft „barnaveikindin“ eða „barnaveikin“, svo algengur var hann).
Hún var ekkja í Þorlaugargerði 1835 með börn sín Guðrúnu Jónsdóttur 9 ára og Jón Jónsson eins árs.
Þau Loftur eignuðust tvö börn, en þau dóu bæði í frumbernsku úr ginklofa.
Guðrún var gift 46 ára húsfreyja í Þorlaugargerði 1840 með Lofti Jónssyni 26 ára og börnum sínum, með Lofti og börnunum 1845 og 1850 með sömu áhöfn og tökubarnið Amalíu Larsdóttur (Tranberg) 10 ára og 1855 með sömu áhöfn, en þá er hjá þeim Ingunn Larsdóttir (Tranberg) 15 ára.
Þau höfðu þá misst tvo nýfædda drengi úr ginklofa, annan 1837, hinn 1838.
Guðrún fluttist til Vesturheims 1857, 62 ára, með Lofti og börnunum Guðrúnu og Jóni Jónsbörnum.

I. Fyrri maður Guðrúnar, (28. júlí 1822), var Jón Oddsson bóndi og sjómaður í Brekkuhúsi 1825, síðar í Þorlaugargerði, drukknaði í Þurfalingsslysinu 5. mars 1834.
Börn þeirra hér:
1. Guðrún Jónsdóttir, 27. mars 1822 á Ofanleiti, d. 28. mars 1822 úr ginklofa.
2. Margrét Jónsdóttir, f. 19. maí 1823 á Ofanleiti, d. 27. maí úr ginklofa.
3. Margrét Jónsdóttir, f. 16. maí 1824 á Ofanleiti, d. 21. maí úr „Barnaveikindum“.
4. Guðrún Jónsdóttir, f. 13. nóvember 1825 í Brekkuhúsi, fór til Vesturheims 1857.
5. Margrét Jónsdóttir, f. 24. mars 1828, d. 1. apríl 1828 úr ginklofa.
6. Halldór Jónsson, f. 13. nóvember 1831 í Þorlaugargerði, d. 21. nóvember 1831 úr ginklofa.
7. Þorbjörg Jónsdóttir, f. 26. apríl 1833, d. 12. maí 1833 úr ginklofa.
8. Jón Jónsson, f. 31. júlí 1834 í Þorlaugargerði, fór til Vesturheims 1857.

II. Síðari maður hennar, (27. október 1836), var Loftur Jónsson formaður, bóndi, smiður, meðhjálpari, sáttanefndarmaður, mormónatrúboði og mormónabiskup, f. 24. júlí 1814, d. 9. september 1874.
Börn þeirra voru:
9. Jón Loftsson, f. 22. september 1837 í Þorlaugargerði, d. 1. október 1837 úr ginklofa.
10. Loftur Loftsson, f. 18. desember 1838 í Þorlaugargerði, d. 28. desember 1838 úr ginklofa.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Landeyingabók – Austur-Landeyjar. Valgeir Sigurðsson og fleiri. Ritstjóri: Ragnar Böðvarsson. Austur-Landeyjahreppur, Gunnarshólma 1999.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.