Gróa Þórðardóttir (Hólshúsi)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 3. janúar 2021 kl. 11:19 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 3. janúar 2021 kl. 11:19 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Gróa Þórðardóttir húsfreyja í Hólshúsi fæddist 18. febrúar 1853 á Löndum og lést 19. júní 1935.
Faðir hennar var Þórður Einarsson sjómaður á Löndum, síðar sjávarbóndi á Vilborgarstöðum, f. 1822, d. 1860.
Móðir Gróu og kona Þórðar var Ástríður Jónsdóttir húsfreyja, f. 28. júlí 1825 í Mýrdal, d. 3. janúar 1904.

ctr


Ingvar Árnason, Gróa Þórðardóttir kona hans og tvö börn, líklega fósturbörn þeirra, Helga Kristmundsdóttir og Bjarni Marinó Einarsson.


Gróa var með foreldrum sínum á Vilborgarstöðum 1855, með ekkjunni móður sinni þar 1860. Hún var alin upp í Nýjabæ hjá Kristínu Einarsdóttur og Þorsteini alþingismanni Jónssyni.
Þar var hún vinnukona 1870 og enn 1890. Þar var þá Ástríður móðir hennar vinnukona og Ingvar Árnason vinnumaður.
Við manntal 1901 var Gróa gift húsfreyja í Hólshúsi. Þar var móðir hennar 75 ára ekkja í skjóli. Þar var einnig Helga Kristmundsdóttir uppeldisdóttir hjónanna 3 ára, en hún var bróðurdóttir Ingvars húsbónda.
Við manntal 1910 voru hjónin þar með uppeldisbörn sín, Helgu og Bjarna Marinó Einarsson, en hann var sonur Einars Árnasonar, bróður Ingvars.

Maður Gróu var Ingvar Árnason í Hólshúsi, f. 1. október 1865 í Berjanesi undir Eyjafjöllum, d. 9. febrúar 1951 í Hólshúsi.

Helga Kristmundsdóttir.

Ingvar og Gróa voru barnlaus, en fósturbörn þeirra voru:
1. Helga Kristmundsdóttir húsfreyja, f. 19. desember 1897, d. 3. maí 1977.
2. Bjarni Marinó Einarsson sjómaður, umsjónarmaður, f. 27. september 1900, d. 25. febrúar 1971.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.