Grænahlíð 4

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 23. nóvember 2016 kl. 10:57 eftir Inga (spjall | framlög) Útgáfa frá 23. nóvember 2016 kl. 10:57 eftir Inga (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit
Grænahlíð 4
Grænahlíð 4,6,8,10
Grænahlíð 2,3 og 4
Grænahlíð 4
Grænahlíð 4
Grunnmynd

Hús Sigurðar Arnars Sighvatssonar í Ási og Soffíu Björnsdóttur frá Bólstaðarhlíð. Lóðarleigusamningur var undirritaður 18. maí 1956. Þau Arnar og Soffa byrjuðu að byggja í Bólstaðarhlíðartúninu og smáskika úr Laufástúninu í maí 1955.

Þau fluttu inn í október 1957 með soninn Sighvat fæddan 10. október 1954. Ingibjörg dóttir þeirra fæddist 13. febrúar 1971. Arnar og Soffía voru fyrst að flytja í Grænuhlíðina. Þau urðu að bíða með flutninginn í hálfan mánuð vegna þess að skolplögn var ekki komin í götuna. Ingibjörg í Bólstaðarhlíð móðir Soffíu fluttist til þeirra 1971.

Húsið fór undir hraun í gosinu 1973


Heimildir