Grænahlíð 18

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 23. nóvember 2016 kl. 11:45 eftir Inga (spjall | framlög) Útgáfa frá 23. nóvember 2016 kl. 11:45 eftir Inga (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit
Grænahlíð 18, niður við sjó má sjá Þurrkhúsið
Grunnmynd
Óskar Pétur og Elías við dúfnakofann sinn.
Peyjar við Grænuhlíð 18.

Hús Friðriks Ásmundssonar Löndum og Valgerðar Erlu Óskarsdóttur Stakkholti. Lóðarleigusamningur var samþykktur í bæjarstjórn 17. nóvember 1959 og undirritaður 5. maí 1961. Þau Friðrik og Erla byrjuðu að byggja í Vatnsdalstúninu í desember 1959. Fluttu inn 20. janúar 1964 með synina Ásmund fæddan 21. janúar 1956 og Óskar Pétur 19. júni 1958. Einnig flutti inn með þeim Jórunn Sigurðardóttir frá Löndum. Hún lést 8. júlí 1965 84 ára. Yngsti sonurinn Elías Jörundur fæddist 2. júní 1967 og bættist þá í hópinn.

Húsið fór undir hraun í gosinu 1973.


Heimildir