Geirland

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 7. desember 2006 kl. 22:17 eftir Smari (spjall | framlög) Útgáfa frá 7. desember 2006 kl. 22:17 eftir Smari (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Húsið Geirland stendur við Vestmannabraut 8. Geir Guðmundsson, útgerðarmaður og vélamaður, reisti húsið árið 1908 og nefndi það eftir sjálfum sér.

Geir sagði að þegar að hann myndi byggja sér hús, þá yrði hátt til lofts þar. Mjög hátt er til lofts í stofunum tveimur á annarri hæð Geirlands, en það er um 3.3 metrar.

Engar heimildir eru til um fyrri klæðningu hússins, en það er talið að það hafi verið klætt síðast um 1960. Árið 2006 hóf Erlendur Gunnarsson, núverandi íbúi þar, að klæða húsið upp á nýtt.