Garðar Arason (Þorlaugargerði)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 26. október 2015 kl. 10:34 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 26. október 2015 kl. 10:34 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Garðar Arason verslunarstjóri og bóndi í Þorlaugargerði eystra fæddist á Akureyri 2. maí 1935.
Foreldrar hans voru Ari Hallgrímsson verslunarmaður á Akureyri, f. 22. júní 1908, d. 15. september 1959 og Hólmfríður Septína Kristjánsdóttir (Fríða) frá Akureyri, f. 1. september 1907, d. 22. janúar 2001, síðar kona Jóns Antons Einars Guðmundssonar múrara, f. 10. mars 1919, d. 6. júlí 2014.

Systkini Garðars, samfeðra, eru:
1. Björn Arason þjónn og húsvörður á Akureyri, f. 10. júní 1943.
2. Hallgrímur Arason veitingamaður á Akureyri, f. 10. júní 1943.
3. Guðmundur Ingi Arason Akureyri, f. 20. apríl 1945, d. 11. desember 1963.
3. Sigríður Aradóttir húsfreyja, búsett í Luxemburg, f. 21. apríl 1946.
Systkini Garðars, sammædd, eru:
4. Sverrir Geir Jónsson bankastarfsmaður í Reykjavík, f. 4. janúar 1950.
5. Ásdís Jónsdóttir skrifstofumaður í Reykjavík, f. 14. desember 1951.

Garðar bjó á Akureyri fram yfir miðja síðustu öld, gekk í Barnaskóla Akureyrar og síðan í Iðnskóla Akureyrar.
Hann kom til Vestmannaeyja á vetrarvertíð og þar kynntust þau, hann og Ingibjörg kona hans. Þau bjuggu um tíma í Reykjavík, en fluttu til Vestmannaeyja árið 1955 og tóku við búi í Þorlaugargerði eystra, þar sem þau hafa búið síðan.
Garðar hóf fljótlega störf sem verslunarmaður hjá Kaupfélagi Vestmannaeyja og starfaði þar lengstan sinn starfsaldur, síðast sem verslunarstjóri.
Fljótlega eftir opnun nýju Flugstöðvarinnar í Vestmannaeyjum, árið 2000, tók hann við rekstri kaffiteríunnar þar og rak hana til ársins 2013.
Þau Ingibjörg hafa undanfarin ár stundað nokkurn fjárbúskap í Þorlaugargerði.

Kona Garðars, (17. júní 1957), er Ingibjörg Jónsdóttir húsfreyja í Þorlaugargerði eystra, f. 14. mars 1934 í Vestmannaeyjum.
Börn þeirra eru:
1. Guðrún Garðarsdóttir starfsmaður forsætisnefndar Norðurlandaráðs, búsett í Reykjavík, f. 11. september 1955. Maður hennar er Max Dager, fyrrv. forstjóri Norræna hússins. Þau eiga eitt barn.
2. Friðrik Garðarsson kjötiðnaðarmaður, búsettur í Vogum á Vatnsleysuströnd, f. 18. desember 1956. Kona hans er Guðmunda Þorbjarnardóttir. Þau eiga fimm börn.
3. Fríða Garðarsdóttir flugumferðarstjóri, búsett í Kópavogi, f. 22. janúar 1960. Maður hennar er Odd Stenersen flugumferðarstjóri. Þau eiga tvö börn.
4. Sigríður Garðarsdóttir, f. 16. október 1963, aðstoðarmaður optikers, búsett í Noregi. Hún á tvö börn.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.