Gamla gatan

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Prentvæn útgáfa er ekki lengur studd og gæti verið með myndgerðarvillur. Uppfærðu bókamerki vafrans þíns og notaðu frekar sjálfgefna prentunaraðgerð vafrans.
Þjóðhátíðarlag
1954 1955 1961

Lagið Gamla Gatan er ein af perlunum út smiðju þeirra félaga Oddgeirs Kristjánssonar og Ása í Bæ.

Ó, gamla gatan mín
ég glaður vitja þín
og horfnar stundir heilsa mér.
Hér gekk ég gullin spor
mín góðu bernskuvor,
sem liðu burt í leik hjá þér.
Í sól og sumaryl
hve sælt að vera til,
við þekktum hvorki boð né bann
en kveiktum ástareld,
sem öll hin rauðu kveld
í ungum hjörtum okkar brann.
Dagarnir hurfu með draumsins þyt.
Dóu mín sumarblóm.
Nú geymi ég þeirra ljós og lit,
sem lifandi helgidóm.
Það berast ómar inn,
ég opna gluggann minn,
og um mig leikur andi hlýr,
því æskan fram hjá fer,
til fundar hraðar sér
að yrkja lífs síns ævintýr.
Lag: Oddgeir Kristjánsson
Texti: Ási í Bæ
Hlusta á tóndæmi af tonlist.is