Gústaf Baldvinsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Baldvin Gústaf Baldvinsson frá Steinholti við Kirkjuveg 9a, framkvæmdastjóri fæddist 30. ágúst 1957.
Foreldrar hans voru Baldvin Skæringsson frá Rauðafelli u. Eyjafjöllum, sjómaður, matsveinn, stýrimaður, skipstjóri, bátasmiður, f. 30. ágúst 1915, d. 24. febrúar 2006, og kona hans Þórunn Elíasdóttir húsfreyja, f. 1. desember 1916, d. 29. júlí 1990.

Börn Þórunnar og Baldvins:
1. Kristín Elísa Baldvinsdóttir húsfreyja, starfsmaður Íslandspósts, f. 19. ágúst 1936 á Bala í Djúpárhreppi, d. 19. júlí 2003. Maður hennar Hörður Runólfsson.
2. Elías Baldvinsson slökkviliðsstjóri, f. 1. júní 1938 á Háarima í Djúpárhreppi, d. 16. september 2003. Kona hans Halla Guðmundsdóttir, látin.
3. Baldur Þór Baldvinsson húsasmíðameistari í Kópavogi, f. 19. júní 1941 á Staðarfelli. Fyrrum kona hans Arndís Ármann Steinþórsdóttir. Kona hans Hugrún Hlín Ingólfsdóttir, látin.
4. Kristinn Skæringur Baldvinsson húsasmíðameistari í Eyjum, f. 29. júní 1942 í Steinholti. Kona hans Sigríður Mínerva Jensdóttir.
5. Ragnar Þór Baldvinsson bifvélavirki, slökkviliðsstjóri í Eyjum, f. 31. desember 1945 í Steinholti. Kona hans Anna Jóhannsdóttir.
6. Birgir Þór Baldvinsson kennari í Reykjavík, f. 15. janúar 1952 í Steinholti. Kona hans Halldóra N. Björnsdóttir.
7. Hrefna Baldvinsdóttir húsfreyja, launafulltrúi hjá Vestmannaeyjabæ, f. 23. janúar 1954 í Steinholti. Maður hennar Snorri Þ. Rútsson.
8. Baldvin Gústaf Baldvinsson framkvæmdastjóri hjá Seagold, dótturfyrirtæki Samherja í Hull, f. 30. ágúst 1957. Kona hans Anna Gunnlaugsdóttir.
9. Hörður Baldvinsson safnstjóri Byggðasafns Vestmannaeyja, síðan framkvæmdastjóri Þekkingarsetursins, f. 25. nóvember 1961. Kona hans Bjarney Magnúsdóttir.

Gústaf var með foreldrum sínum, í Steinholti og við Illugagötu 7.
Hann lauk kennaraprófi í Háskóla Ísland 1985, meistaraprófi í stjórnun í University of Hull á Englandi 1987.
Gústaf var knattspyrnuþjálfari á Vopnafirði og á Akureyri, starfsmaður Isberg Ltd. í Hull og síðar framkvæmdastjóri Seagold Ltd. í Hull frá 1996.
Þau Anna giftu sig 1986, eignuðust fjögur börn.

I. Kona Gústafs, (27. desember 1986), er Anna Gunnlaugsdóttir íþróttakennari frá Ísafirði, f. 11. júní 1959. Foreldrar hennar Gunnlaugur Friðrik Jónsson bóksali á Ísafirði, f. 28. febrúar 1930, og kona hans Lára Steindóra Gísladóttir húsfreyja, f. 8. janúar 1931.
Börn þeirra:
1. Lára Dögg Gústafsdóttir kennari í Svíþjóð, f. 15. september 1984. Sambúðarmaður David Gustav Johansson.
2. Salka Gústafsdóttir kennari á Ísafirði, f. 1. júlí 1988.
3. Orri Gústafsson sjávarútvegsfræðingur í Bandaríkjunum, f. 27. mars 1990.
4. Hrefna Gústafsdóttir sjávarútvegsfræðingur á Akureyri, f. 7. mars 1996. Sambúðarmaður hennar Aron Hákonarson.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.