Gísli Símonarson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 29. júní 2015 kl. 22:09 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 29. júní 2015 kl. 22:09 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Prentvæn útgáfa er ekki lengur studd og gæti verið með myndgerðarvillur. Uppfærðu bókamerki vafrans þíns og notaðu frekar sjálfgefna prentunaraðgerð vafrans.

Gísli Símonarson kaupmaður og eigandi Garðsverzlunar.
Gísli var verzlunarþjónn hjá Jakobeus í Keflavík 1801. Varð síðar kaupmaður í Reykjavík og Eyjum.
Sören Jacobsen stórkaupmaður í Kaupmannahöfn hafði keypt Garðsverzlun af erfingjum Westy Petreus 1830, en afsal fór fram 1832. Hann seldi Gísla hálfa verzlunina með afsali 9. janúar 1833 og hinn helminginn keypti Gísli af þrotabúi Sörens með afsali 14. febrúar 1835.
Gísli þótti mikill dugnaðar og þrekmaður. Hann bjó í Reykjavík og Kaupmannahöfn, en hafði verzlunarstjóra fyrir sig í Eyjum. Hann andaðist ári eftir kaupin.
Ekkja hans Guðrún Bjarnadóttir seldi svo verzlunina Jens Jakobi Benediktssen 1838.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.