Gísli R. Sigurðsson (Götu)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 29. janúar 2019 kl. 22:18 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 29. janúar 2019 kl. 22:18 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Gísli R. Sigurðsson.

Gísli Ragnar Sigurðsson útgerðarmaður, verkamaður fæddist 16. september 1916 á Kirkjubæ og lést 17. maí 1995 á Sjúkrahúsinu.
Foreldrar hans voru Sigurður Sigurðsson frá Ormsvelli í Hvolhreppi, verkamaður, f. 16. maí 1867, d. 30. desember 1939, og sambýliskona hans Vilborg Jónsdóttir frá Einholti á Mýrum, A-Skaft, húsfreyja, f. 24. apríl 1889, d. 19. mars 1949.

Börn Sigurðar og Vilborgar:
1. Gísli Ragnar Sigurðsson útgerðarmaður, f. 16. september 1916 á Kirkjubæ, d. 17. maí 1995.
2. Helga Sigurðardóttir húsfreyja, sambýliskona Sigurðar Loftssonar á Bakka í Landeyjum, f. 6. september 1918, d. 20. febrúar 1996.
3. Engilberta Ólafía Sigurðardóttir, f. 12. október 1920 á Búastöðum, d. 26. apríl 1975.
4. Jóhann Pétur Sigurðsson, f. 12. október 1923 í Götu, d. 8. ágúst 1956.
5. Jón Stefán Sigurðsson bóndi á Ketilstöðum í Mýrdal, f. 20. júlí 1926, d. 13. september 1981.
6. Benedikt Ragnar Sigurðsson, f. 4. nóvember 1934 í Götu, síðast á Akureyri, d. 21. mars 1993.

Gísli var með foreldrum sínum í fyrstu, með þeim á Kirkjubæ, á Búastöðum, var vikadrengur í Núpakoti u. Eyjafjöllum 1930, en var í Götu, bjó þar 1940, bjó með Sigríði á Skólavegi 1 1949, en lengst á Faxastíg 41 og bjó þar við andlát.
Hann gerðist útgerðarmaður, eignaðist hlut í Farsæli VE 12 1953 með Karli Ólafssyni.
Gísli starfaði innan hagsmunasamtaka útgerðarmanna, m.a. átti hann sæti í stjórn Útvegsbændafélags Vestmannaeyja og var framkvæmdastjóri þess um árabil.
Hann gaf út ritið Heimaklett ásamt félaga sínum Friðþjófi G. Johnsen.

I. Kona Gísla Ragnars, (6. desember 1941), var Sigríður Lovísa Haraldsdóttir frá Ísafirði, húsfreyja, f. 15. september 1916, d. 12. september 2001.
Barn þeirra, fósturbarn:
1. Jón Kristinn Haraldsson húsasmíðameistari í Reykjavík, f. 10. júní 1947. Hann er hálfbróðir Sigríðar, samfeðra.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.