„Gísli J. Johnsen“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
m (Tók út eina heimild þar sem Skapti hefur ekki enn skoðað þetta fyrir minningagreinar)
m (málfar)
Lína 5: Lína 5:
Gísli átti einnig sinn sess í útgerðarsögu Vestmannaeyja. Hann lét smíða og flytja til Eyja fyrsta vélknúna fiskibátinn árið 1904 og árið 1928 lét hann smíða skipið Heimaey með loftskeytatækjum og var hann fyrstur allra vélbáta, á Íslandi, með þannig tækjum. Árið 1956 gáfu hann og síðari kona hans Slysavarnafélagi Íslands björgunarbát með fullkomnum útbúnaði. Einnig var [[Stýrimannaskólinn í Vestmannaeyjum]] til húsa í [[Breiðablik]], sem hann reisti og bjó í.

Gísli var eindreginn sjálfstæðismaður. Honum langaði alltaf að gerast þingmaður Vestmannaeyja á Alþingi, en heimilisástæður leyfðu honum það ekki.
Gísli var eindreginn sjálfstæðismaður. Hann langaði alltaf að gerast þingmaður Vestmannaeyja á Alþingi, en heimilisástæður leyfðu honum það ekki.

Gísli var sæmdur mörgum heiðursorðum í gegnum árin og var hann heiðursfélagi í Félagi íslenzkra stórkaupmanna.
Gísli var sæmdur mörgum heiðursorðum í gegnum árin og var hann heiðursfélagi í Félagi íslenzkra stórkaupmanna.

Útgáfa síðunnar 7. september 2005 kl. 20:02

Gísli Jóhannsson Johnsen fæddist í Vestmannaeyjum þann 10. mars 1881. Foreldrar hans voru Jóhann Jörgen kaupmaður og útvegsbóndi og Anna Sigríður Árnadóttir frá Hofi í Öræfum. Fyrri eiginkona Gísla var frú Ásdís Gísladóttir frá Hól og eignuðust þau 3 börn. Ásdís átti við vanheilsu að stríða mestan hluta ævi sinnar og lést 1945. Síðari kona hans var frú Anna Ólafsdóttir yfirhjúkrunarkona á Vífilsstöðum. Gísli lést 6. september 1965 og var jarðaður við hlið fyrri konu sinnar, Ásdísar, í Gamla kirkjugarðinu í Reykjavík.

Gísli hóf ungur að aldri verslunarrekstur, aðeins 17 ára gamall. Með verslun sinni og útgerðarekstri náði hann að koma niður Brydesverzlunina og á aðeins 10 árum að bæla niður dönsku einokunina, sem hafði verið í margar mannsaldir. Einnig var honum falin ýmis ábyrgðarstörf, svo sem skipaafgreiðslu og póstafgreiðslu.

Gísli átti einnig sinn sess í útgerðarsögu Vestmannaeyja. Hann lét smíða og flytja til Eyja fyrsta vélknúna fiskibátinn árið 1904 og árið 1928 lét hann smíða skipið Heimaey með loftskeytatækjum og var hann fyrstur allra vélbáta, á Íslandi, með þannig tækjum. Árið 1956 gáfu hann og síðari kona hans Slysavarnafélagi Íslands björgunarbát með fullkomnum útbúnaði. Einnig var Stýrimannaskólinn í Vestmannaeyjum til húsa í Breiðablik, sem hann reisti og bjó í.

Gísli var eindreginn sjálfstæðismaður. Hann langaði alltaf að gerast þingmaður Vestmannaeyja á Alþingi, en heimilisástæður leyfðu honum það ekki.

Gísli var sæmdur mörgum heiðursorðum í gegnum árin og var hann heiðursfélagi í Félagi íslenzkra stórkaupmanna.

Heimildir

  • Sigfús M. Johnsen: Yfir fold og flæði. Reykjavík, 1972.