Gísli G. Wíum (kaupmaður)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Prentvæn útgáfa er ekki lengur studd og gæti verið með myndgerðarvillur. Uppfærðu bókamerki vafrans þíns og notaðu frekar sjálfgefna prentunaraðgerð vafrans.

Gísli Guðmundsson Wíum frá Mjóafirði eystra, kaupmaður fæddist 22. maí 1901 á Melum í Mjóafirði og lést 27. júní 1972.
Foreldrar hans voru Sigrún Þórunn Sveinbjörnsdóttir, f. 10. janúar 1860, d. 28. janúar 1937, og maður hennar Guðmundur Hansson Wíum, f. 18. ágúst 1857, d. 28. nóvember 1910.

Gísli var með foreldrum sínum í bernsku, en faðir hans lést 1910. Var Gísli með móður sinni og Hans eldri bróður sínum, sem var fyrirvinna móður þeirra, í Skógum í Mjóafirði 1910-1912, á Norðfirði 1912-1914, á Kolableikseyri í Mjóafirði 1914-1917.
Gísli var hjá þeim á Asknesi 1920, hleypti heimdraganum um tvítugt, fór til Noregs og ætlaði í bændaskóla, en Ellefsen hvalaveiðari fékk hann til hvalveiða við Suður-Afríku. Þeir veiddu þar á veturna, en dvöldu í Noregi á sumrum og stunduðu sveitastörf.
Gísli eignaðist Kristinn með Þóru 1926 og ól hann upp frá 10 ára aldri.
Gísli keypti hluta af Reykjajörðinni í Mjóafirði og átti síðan, ásamt Hans bróður sínum, en eignarhlutinn var síðar færður á Dóru Sif dóttur Gísla.
Hann fluttist til Eyja frá Neskaupstað 1930, var verkstjóri. Þau Guðfinna giftu sig á árinu. Þau bjuggu þá í Jóhannshúsi. Á Ingólfshvoli bjuggu þau 1931 við fæðingu Elísu Bjargar, á Hásteinsvegi 42 við fæðingu Dóru Sifjar. Um eins árs skeið bjuggu þau í Neskaupstað.
Gísli byggði lítið hús við Heiðarveg 9 og verslaði þar um skeið, en þar var Bifreiðastöðin til húsa í nokkur ár. Gísli hafði verið framkvæmdastjóri hennar, fyrst í Jómsborg. Hann hætti hjá Stöðinni 1942 og byggði stærra hús á staðnum. Þau fluttu þangað 1944. Á Heiðarveginum bjuggu þau síðan uns þau fluttu til Reykjavíkur 1957. Þar vann Gísli m.a. hjá FACO.
Gísli lést 1972 og Guðfinna 1998.

Kona Gísla, (10. maí 1930), var Guðfinna Jóna Steindórsdóttir Wíum f. 27. febrúar 1909 í Götuhúsum á Stokkseyri, d. 14. maí 1998 á Hjúkrunarheimilinu Skjóli í Reykjavík.
Börn þeirra:
1. Elísa Björg Gísladóttir Wíum húsfreyja í Garðabæ, myndlistarmaður, f. 12. febrúar 1931, d. 23. desember 2017. Maður hennar var Gunnar Jónsson.
2. Dóra Sif Gísladóttir Wíum húsfreyja í Reykjavík, verslunarmaður, bankastarfsmaður, f. 20. mars 1934. Maður hennar, (skildu), var Hilmar Hálfdánarson.
Sonur Gísla fyrir hjónaband ólst upp hjá Guðfinnu og Gísla frá tíu ára aldri. Hann var
3. Kristinn Gíslason Wíum iðnrekandi, skrifstofumaður, f. 17. júní 1926 í Skálholti yngra, d. 13. janúar 1994. Kona hans, (skildu), var Marta Sveinsdóttir. Barnsmóðir Kristins var Ljótunn Indriðadóttir.



Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.